Skoðun

Hvað ef það er ekki „allt í gulu“?

Liv Anna Gunnell skrifar

Nú er gulum september lokið, sem er samvinnuverkefni stofnana og félagasamtaka sem vinna saman að geðrækt og sjálfsvígsforvörnum en gulur september hófst rétt fyrir alþjóðaforvarnardag sjálfsvíga 10.september. Í tilefni af gulum september hefur sálfræðiþjónusta þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu unnið að því að setja inn lesefni um algengan geðheilbrigðisvanda á heilsuveru.is og byrjað var á að setja inn upplýsingar um sjálfsvígshugsanir. Þar er að finna mikið af hjálplegum hlekkjum og upplýsingum um hvert hægt er að leita ef við eða þeir sem við þekkjum eru með slíkar hugsanir.

Margir segja einhverjum í nærumhverfi sínu frá líðan sinni viku áður en þeir gera tilraun til að taka eigið líf. Það eru ekki allir með sérmenntun í því að meta sjálfsvígshættu, greina geðheilbrigðisvanda eða veita ráðgjöf og meðferð við slíkum vanda. Þess vegna skiptir máli að allir, ekki bara heilbrigðisstarfsfólk, viti hvert hægt er að leita til þess að fá réttar upplýsingar og viðeigandi aðstoð.

Það er mikilvægt að gera ekki lítið úr líðaninni heldur hlusta á þann sem segir frá svona líðan og hjálpa viðkomandi að komast í viðeigandi mat og meðferð. Hægt er að leita til heilsugæslu um land allt á opnunartíma og til geðdeildar eða bráðamóttöku, en þær upplýsingar má finna á heilsuvera.is. Hægt er að fá aðstoð í gegnum netspjall á 112.is eða 1717.is og aðstoð í síma hjá Píeta samtökunum, Berginu headspace og hjálparsíma Rauða krossins. Sjá einnig sjalfsvig.is. Í neyðartilfellum er mælt með að hringja í 112.

Rannsóknir benda einnig til þess að þeir sem deyja í sjálfsvígi leiti mun oftar til heilbrigðisstofnana en samanburðarhópar vegna ýmiskonar vanda viku og mánuðum fyrir sjálfsvíg. Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu hefur tekið þátt í að efla þekkingu fagfólks í heilsugæslu í samræmi við aðgerðaáætlun til að fækka sjálfsvígum með því að halda fræðslufund fyrir fagfólk um sjálfsvíg, bjóða upp á námskeið um gagnreynt mat á sjálfsvígshættu og auka aðgengi fagfólks í heilsugæslu að gögnum sem styðja við slíkt mat.

Mikilvægt er að hægt sé að vísa í viðeigandi meðferð ef matið bendir til undirliggjandi geðheilbrigðisvanda þar sem ómeðhöndlaður geðheilbrigðisvandi getur leitt til versnunar á einkennum. Víða um landið starfa sálfræðingar á heilsugæslustöðvum sem eru með sérþjálfun í að meta sjálfsvígshættu, geta gert ítarlegt mat á geðheilbrigðisvanda og veitt meðferð við algengum geðrænum vanda eins og þunglyndi, kvíðaröskunum og áfallastreituröskun. Nú er komið inn á heilsuveru.is nýtt lesefni um sorg, þunglyndi og félagsfælni og unnið er að því að setja inn meira fræðsluefni um algengan geðheilbrigðisvanda næstu vikurnar í tilefni af alþjóða geðheilbrigðisdeginum 10.október.

Höfundur er fagstjóri sálfræðiþjónustu Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×