Lífið

Svan­dís mat­væla­ráð­herra hefur eignast nöfnu í Keldu­dal

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Svandís og Sunna í Keldudal en kýrin Svandís er mjög spök og verður vonandi dugleg að framleiða íslenska mjólk í mjaltaþjóni fjóssins.
Svandís og Sunna í Keldudal en kýrin Svandís er mjög spök og verður vonandi dugleg að framleiða íslenska mjólk í mjaltaþjóni fjóssins. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra hefur eignast nöfnu en það er kýr á bænum Keldudal í Hegranesi í Skagafirði. Kýrin, sem er rétt rúmlega eins árs þykir efnileg og á vonandi eftir að mjólka mikið í framtíðinni.

Í Keldudal er nýtt og glæsilegt fjós hjá bændunum á bænum, þeim Guðrúnu Lárusdóttur og Þórarni Leifssyni með einum mjaltaþjóni. Fjósið var 14 mánuði í byggingu.

„Þetta er svona þægilegra en vinnutíminn hefur ekki styst en þetta er svona miklu sveigjanlegra og hreinlegra, léttari vinna. Við erum með um 70 kýr og hálfa milljón lítra í framleiðslu,“ segir Guðrún Lárusdóttir kúabóndi í Keldudal.

Guðrún og Þórarinn eru alsæl með nýja fjósið sitt í Keludal.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Allar kýrnar í fjósinu hafa nöfn og kvígurnar líka. Sunna Þórarinsdóttir, heimasætan á bænum sér um að gefa nöfnin.

„Já, ég fæ að ráða svona flestum nöfnunum en það er misvel tekið í þau en það er búið að vera vel tekið í þau undanfarið. Það hefur aðeins verið Guðrúnar frá Lundi þema þannig að við eigum Þóru, Lilju og Borghildi og Sigurlínu. Síðan erum við alltaf með hefðbundnar Huppur og Skjöldur en mér finnst skemmtilegra að þær heiti svona fjölbreytt,“ segir Sunna.

Og ein kvíga fékk nafn Svandísar matvælaráðherra og heitir í höfuðið á henni.

„Heyrðu, jú, jú, það er ein Svandís Svavars hjá okkur. Hún er orðin ársgömul kvíga núna. Við höfum stundum látið heita eftir landbúnaðarráðherrunum ef okkur líst vel á þá,“ segir Sunna hlægjandi og bætir við.

„Svandís er ansi spök því hún á það til að elta mann aðeins um. Hún hagar sér alltaf vel samt.“

En eru einhverjir ráðherrataktar í henni?

„Ég veit það ekki alveg, það á eftir að koma í ljós. Ég býst við að við sjáum það þegar hún fer að læra á róbótinn þegar hún verður eldri,“ segir Sunna og hlær.

Svandís ráðherra heimsótti nýlega nýja fjósið í Keldudal en hún er hér með Sunnu og Þórarni. Hún hitti að sjálfsögðu nöfnu sína líka.Aðsend

En hún er mjög falleg?

„Já, hún er mjög falleg, líka stór eftir aldri og svona.“

Nýja fjósið í Keldudal er glæsilegt í alla staði.Magnús Hlynur Hreiðarsson





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.