Skoðun

Kynja­halli í Ís­lensku orða­neti

Helga Hilmisdóttir, Steinþór Steingrímsson og Trausti Dagsson skrifa

Á visir.is þann 14. september birtist viðtal við formann Félags ungra athafnakvenna (UAK) þar sem hún gagnrýnir framsetningu orðanna athafnakona og athafnamaður í Íslensku orðaneti. Í viðtalinu bendir hún á að karlkynsorðið tengist fjölmörgum orðum en að netið sýni aðeins örfá tengd orð þegar flett er upp á kvenkynsorðinu. Í viðtalinu skorar formaðurinn á Árnastofnun að „bæta um betur þannig að hægt sé að kynjajafna íslenskuna þar sem það er mögulegt.“

Mikilvægt er að notendur Orðanetsins geri sér grein fyrir eðli og tilgangi gagnasafnsins. Ritstjóri og hugmyndasmiður þess er Jón Hilmar Jónsson. Orðanetið hefur verið á vefnum í um áratug og samkvæmt mælingum fær það að meðaltali um 1000 heimsóknir á dag. Gagnasafnið nýtist aðallega þeim sem vinna með íslenskt mál eins og t.d. textasmiðum, rithöfundum, blaðamönnum og kennurum.

Tilgangur Orðanetsins er fyrst og fremst að varpa ljósi á tengsl orða. Orðalistarnir og myndræn framsetning sem þar birtast byggjast á gögnum úr fórum Árnastofnunar og af dæmum sem finna má á Tímarit.is, þ.e. efni úr íslensku ritmáli sem teygir sig u.þ.b. hálfa öld aftur í tímann. Orðanetið endurspeglar því ekki viðhorf ritstjóra eða starfsmanna Árnastofnunar. Orðanetið er lýsandi fremur en vísandi og niðurstöðum ber að taka með fyrirvara. Það er á ábyrgð málnotenda að velja og hafna einstökum orðum og orðasamböndum og að túlka tengingar á milli ákveðinna orða.

En af hverju stafar þessi munur á orðunum athafnakona og athafnamaður? Á Tímarit.is sést að mikill munur er á fjölda tilvika. Á árunum 1970 til 1979 má finna 461 tilvik um orðið athafnamaður en athafnakona kemur aðeins fyrir tvisvar sinnum. Á árunum 2010 til 2019 er munurinn enn mikill eða 896 dæmi um athafnamann á móti 304 dæmum um athafnakonu. Þarna er því umtalsverður munur sem endurspeglast í myndrænni framsetningu Orðanetsins. Fleiri dæmi þýða fleiri tengingar og því má segja að Orðanetið staðfesti tilfinningu stjórnar UAK um ákveðinn kynjahalla í íslensku. Til að laga þetta þarf þó að breyta opinberri umræðu og málnotkun í íslenskum fjölmiðlum. Íslenskt orðanet endurspeglar aðeins raunverulega málnotkun eins og hún birtist í rituðum heimildum.

Til upplýsingar má benda á að orðin athafnamaður og athafnakona koma bæði fyrir í Íslenskri nútímamálsorðabók. Þar eru skilgreiningarnar keimlíkar, annars vegar ‘kona sem er umsvifamikil í atvinnulífi og viðskiptum’ og hins vegar ‘umsvifamikill maður í atvinnulífi og viðskiptum´.

Höfundar sitja í ritnefnd Íslensks orðanets.




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×