Stjórnlaus fasteignamarkaður og ábyrgðarlausir stjórnmálamenn lofa hverju sem er Vilhelm Jónsson skrifar 12. september 2023 10:30 Það er ekki nóg að segja að það þurfi að fjölga nýjum íbúðum og lækka byggingarkostnað og gera síðan ekki neitt til þess. Traust fasteigna uppbygging getur ekki þrifist við áratuga verðbólgu, óstjórn og úrræðaleysi stjórnmálamanna þar sem hlutirnir eiga bara að reddast. Engu mun skipta hvað margar nefndir verða skipaðar. Þúsundir heimila gjalda með lífshamingju sinni og leysast oft upp og takast á við ævilanga fátækt. Megin vandinn til að eðlilegur húsnæðismarkaði þrífist er skortur á traustri útlána starfsemi,vitrænu vaxta umhverfi og langtíma stöðuleika. Græðgisvæðing og rányrkja í boði bankasýslunar hjálpar ekki til að draga úr kostnaði frekar en óhóflegar vaxtahækkanir Seðlabankans. Þó svo verðtrygging eigi e.t.v. rétt á sér getur hún aldrei einhliða þjónað því hlutverki sem henni var ætlað sé litið til síðustu 44 ára frá upptöku. Þarf ekki annað en að líta til lánskjara nágranna landa til að sjá að fjármála umsýsla á Íslandi er í molum með tilheyrandi afleiðingum á fasteignamarkaði og áhrifum á lífs afkomu landsmanna. Það er löngu tímabært að þjóðin átti sig á að ekki er endalaust hægt að líða ömurlega frammistöðu og skeytingarleysi stjórnvalda. Það líður ekki þingvetur sem áratuga gömul tugga er ekki notuð hvernig lækka megi verðbólgu og koma á hagfelldari fasteigna útlánum og telja þjóðinni trú um að betri tímar séu handan við hornið. Hlutabótaleiðin varð aldrei annað en tálsýn og svik hjá stjórnvöldum til að ná fram kjarasamningum og slá ryki í augu verkalýðshreyfingarinnar. HMS á að stýra útlánum með geðþótta ákvörðunum hvort og hverjir nýti sér leiðina þar sem það er lokað á notað og ódýrara húsnæði. Enn og aftur er gefið í skyn að aðeins þurfi að fínpússa verklagið þegar verðlags hækkanir gera opinber viðmið og greiðslumöt úrelt. Spurning hvað margir sprenglærðir fræðingar eru í nefnd að finna bestu leiðina. Tug þúsundir manna hafa lítið eða ekkert fjármálalæsi og eiga allt undir að stjórnvöld skapi traustan og eðlilegan húsnæðismarkað sem og efnahags stöðugleika.Heilbrigður fasteigna markaður þrífst illa í langri fasteignabólu drifinni af stjórnleysi og óskhyggju. Hækkun á byggingarkostnaði vegna ýmissa aðgerða stjórnvalda gerir síðan vont verra. Byggingakröfur eru orðnar óraunhæfar fyrir tilverknað stjórnsýslu sem er sínkt og heilagt að innleiða óraunhæft reglufargan sem og kröfur um aukið aðhald og forræðishyggju. Það er tímabært að stjórnsýslan sé einfölduð og viðurkennt að fasteigna stýring er komin í óefni. Glórulaus uppbygging og spenna í ferðamannageiranum skekkir eðlilega uppbyggingu og er einn megin orsakavaldurinn á þeirri spennu og óstjórn sem er heimatilbúin. Afleiðingarnar eru ekki bara hagvöxtur og tóm hamingja. Verðlags eftirlit er í molum. Skipafélögin við Sundahöfn og Skarfabakka eru spegilmynd hverskonar rányrkja þrífst í landinu í skjóli einokunar og sinnuleysis stjórnvalda að ógleymdu ranglæti kvóta kerfisins í nafni fiskveiði stjórnunar. Sveitarfélögin á stór Reykjavíkur svæðinu ástunda verklag og verðlagningu er snýr að lóðaúthlutun og lóða framboði sem er til þess fallið að sprengja upp lóðarverð. Lóðar skortur er viðvarandi og ekkert lát á innan tómum loforðaflaumi sem hafa verið allsráðandi í sveitastjórna kosningum um árabil. Þétting byggða er öfgafull og ætla mætti að landleysi sé með svipuðum hætti og á hinu þéttbýla Gasa svæðinu í Ísrael. Það er löngu tímabært að láta af forræðishyggju ábyrgðarlausra kerfiskarla sem hafa vart vit eða vilja til að sýna skynsemi og ábyrgðarkennd. Það er óásættanlegt að byggingarverktakar með áratuga reynslu búi við að ný útskrifaðir fræðingar herði sí og æ kröfur í anda forræðishyggju grundvallaða á endalausum hertum kröfum. Það skiptir vart máli hvort byggður sé útikamar eða raforkuver. Allt sett undir sama reglufarg með óraunhæfum kröfum. Kostnaðarauki, tafir og aðrar afleiðingar skipta engu. Einnig er löngu tímabært að hönnuðir og verkfræðistofur axli ábyrgð og íhugi þann aukna kostnað sem arfavitlausar og oft illa ígrundaðar tillögur að uppbyggingu valda. Illu heilli er nýi Landsspítalinn óþægileg áminning um slík vinnubrögð. Eigi að lækka byggingarkostnað þarf annað og meira en stjórnmálamenn til þeirra verka, sem hafa vart vitsmuni eða vilja í annað og meira en að fókusera á stóla og sérhagsmuna gæslu. Lækkun á byggingarkostnaði verður aðeins náð með hugarfarsbreytingu og aðhaldi, sá niðurskurður næst ekki fyrir tilverknað ríkisbubba. Bygginga kostnaður lækkar ekki með að vöruflutningabílar þveri borgina t.d. frá vesturenda borgarinnar að keyra hundruðum þúsunda rúmmetra jarðvegs úr húsgrunnum austur í önnur sýslumörk upp í Bolöldur, langleiðina í Bláfjöll eða Álsnes í Kollafirði. Þessu fyrirkomulagi fylgir ómæld óþægindi og tafir fyrir almenna umferð. Eðlilegra er að nýta efnið í uppfyllingu innan borgarmarka eins og átti sér stað áður en óhæf borgarstjórn breytti verklaginu. Með breyttu verkferli má auka landrými og lágmarka vörubíla akstur og sóðaskap sem hlýst af óþarfa akstri, töfum og kostnaðarauka ásamt kolefnis ójöfnuði. Sama á við varðandi stöðvun efnis flutninga og sjódælingu á sandi sem Björgun var með í túnfætinum á bryggjuhverfinu. Nú þarf að sækja efnið tugi kílómetra út fyrir borgarmörkin. Sé litið til kostnaðar hefði mátt réttlæta aðstöðuna og kostnað við að fyrirbyggja sjónmengun og sandrok bryggjuhverfi til hagsældar. Einn mesti þjóðarglæpur á íslenskum byggingamarkaði er verklag á Landspítala reitnum ásamt áratuga hönnunar og breytinga kostnaði fyrir atbeina ábyrgðarlausra stjórnmálamanna. Tug milljarða kostnaður mun vaxa áfram eftirlitslítið næsta áratuginn við að aðlaga byggingarnar breyttum áherslum, hringlandahætti og bútasaumi. Það er umhugsunarvert að læknastéttin horfi steinþegjandi á að uppbygging og tímasetning á spítalanum eru ekki að ganga eftir. Hefði ekki verið einfaldara að byggja 1-2 turna á Vífilsstaðartúni á grundvelli þekktra hönnunar í Skandinavíu fyrir brot af þessum byggingarkostnaði í Vatnsmýrinni? Auk þess sem unnt hefði verið að fá gott verð fyrir frábært byggingarland og nýjar lóðir. Miðpunktur borgarinnar er nefnilega ekki lengur í Vatnsmýrinni eða á Laugaveginum heldur miklu austar! Það líður vart fréttatími þar sem ekki er klifað á efnahags þrengingum og van áætluðum útboðskostnaði og verkáætlunum. Borgarlínan trónir á toppnum fyrir tilverknað ábyrgðarlaus borgarstjóra sem er fátt heilagt og telur eðlilegt að ríkissjóður borgi skilyrðislaust óraunhæfan óskalista. Þessa dagana vantar borgarstjóra helst Þjóðarhöll og Parísarhjól við Austurhöfn. Borgarstjórinn er helst sýnilegur við að úthluta medalíum og blómum til listaspíra. Það er íhugunarefni að læknis menntaður borgarstjóri skuli leynt og ljóst vera einn helsti andstæðingur flugvallar „allra landsmanna“ í Reykjavík og gengur hart fram í að takmarka aðgengi landsbyggðar fólks að Landsspítalanum. Forsætisráðherra hefur verið lít sýnileg eftir að henni varð ljóst hve óvinsæl hún er orðin. Það er helst að hún komi fram ef hún getur baðað sig í sviðsljósi við að skrifa undir viljayfirlýsingar um einhver verkefni sem falla vel í kramið. Ráðherrann virðist ekki treysta sér í pólitískar rökræður og opnar aðeins á drottningarviðtöl á RÚV við bitlausa fréttamenn sem sleppa óþægilegum spurningum sem væru ráðherranum lítt þóknanlegar. Í vetur má búast við að sjá sigurreifa verkalýðs leiðtoga ásamt forustusveit ríkisstjórnaflokkanna fagna nýgerðum kjarasamningum. Þeir munu ekki fúlsa við öndvegis Vöfflu kaffi en þó með óbragði í munni eftir að hafa innbyrt loforðaflaum og undirritað samkomulag um uppbyggingu þúsunda íbúða á lágmarksverði ásamt veglegum launahækkunum til hinna læst launuðu. Væntanlega er mikill hugur hjá endurnærðum þingheimi eftir rúmlega þriggja mánaða sumardvala að bretta upp ermar og takast á við haustverkin og láta verkin tala áður en tekist verður á um að komast í feitt jólafríi. Forsætisráðherra mun væntanlega koma með coperaða lofræðu í eldhúsdags umræðum um hve ríkisstjórn hennar sé æðisleg og mikill efnahagsbati handan við hornið. Fjármálaráðherra mun líklega skerpa á í sínum annál að hið eina rétt sé að selja restina af Íslandsbanka til vildarvina eftir vel heppnaða sölu síðasta áfanga. Einnig að upplýsa að ríkisskuldir séu í frjálsu falli og allur efnahagur þjóðarinnar á góðri siglingu undir styrkri stjórn. Stjórnmálamenn víla ekki fyrir sér að halda röngum upplýsingum að þjóðinni. Það er tímabært að þjóðin fari úr pólitískum skotgröfum og hætti að puðra hvort annað niður og horfist í augu við að sömu gerspilltir stjórnmálamenn koma aftur og aftur eins og illskeytt krabbamein að endurnýja umboð sitt. Senn ríður Samfylkinga dísin fram á Austurvelli sem nýtt sameiningar tákn og ef að líkum lætur mun Hafnarfjarðar drottningin ekki láta sitt efir liggja að bjarga þjóðinni fyrir nokkra ráðherra stóla. Tæplega mun Klaustur Liljan skorast undan ábyrgð. Valhallar gyðjurnar munu eflaust einnig boðnar og búnar að bjarga þjóðinni. Mögulega fæst forsætisráðherra í endurtekin þríleik ef hún fær að vera áfram aðal númerið. Höfundur er athafnamaður. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Vilhelm Jónsson Húsnæðismál Mest lesið Lægjum öldurnar Halla Hrund Logadóttir Skoðun Að hata einhvern sem þú þarft á að halda? Katrín Pétursdóttir Skoðun Íslendingar flytja út fisk og líka ofbeldismenn Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun SFS, Exit og norska leiðin þeirra Jón Kaldal Skoðun Halldór 26.04.2025 Halldór Friður - í framsöguhætti eða viðtengingarhætti? Bryndís Schram Skoðun Iðjuþjálfar í leik- og grunnskólum: Tækifæri í baráttunni gegn agavanda og skólaforðun Hekla Björt Birkisdóttir,Hrefna Dagbjört Arnardóttir,Inga Fríða Guðbjörnsdóttir,Íris Kristrún Kristmundsdóttir Skoðun Frans páfi kvaddur eða meðtekinn? Bjarni Karlsson Skoðun Mega bara íslenskir karlmenn nauðga konum á Íslandi? Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Til hamingju blaðamenn! Hjálmar Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til heilbrigðisráðherra: Iðjuþjálfar – mikilvægur mannauður í geðheilbrigðisþjónustu framtíðarinnar Erna Rut Elvarsdóttir,Lilja Logadóttir, Rebekka Lind Hjaltadóttir,Sandra Dís Sigurðardóttir skrifar Skoðun Saga Israa á Gaza og hvernig hægt er að verða að liði Katrín Harðardóttir,Israa Saed skrifar Skoðun Fordómar frá sálfélagslegu sjónarhorni Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar Skoðun Er aldur bara tala? Teitur Guðmundsson skrifar Skoðun Íslendingar flytja út fisk og líka ofbeldismenn Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Iðjuþjálfar í leik- og grunnskólum: Tækifæri í baráttunni gegn agavanda og skólaforðun Hekla Björt Birkisdóttir,Hrefna Dagbjört Arnardóttir,Inga Fríða Guðbjörnsdóttir,Íris Kristrún Kristmundsdóttir skrifar Skoðun Frans páfi kvaddur eða meðtekinn? Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Lægjum öldurnar Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Að hata einhvern sem þú þarft á að halda? Katrín Pétursdóttir skrifar Skoðun Íslenskar pyndingar Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun SFS, Exit og norska leiðin þeirra Jón Kaldal skrifar Skoðun Friður - í framsöguhætti eða viðtengingarhætti? Bryndís Schram skrifar Skoðun Næringarfræði er lykillinn að betri heilsu, viltu vera með? Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar Skoðun Löngu þarft samtal um hóp sem gleymist! Katarzyna Kubiś skrifar Skoðun Menntun fyrir öll – nema okkur Haukur Guðmundsson skrifar Skoðun Það er ekki hægt að loka augunum fyrir þessum veruleika Davíð Bergmann skrifar Skoðun Kirkjugarðsballið: Eiga Íslendingar að mæta þar? Birgir Dýrfjörð skrifar Skoðun Að sækja gullið (okkar) Þröstur Friðfinnsson skrifar Skoðun Til hamingju blaðamenn! Hjálmar Jónsson skrifar Skoðun Stormur í Þjóðleikhúsinu Bubbi Morthens skrifar Skoðun Börn í skugga stríðs Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Opið bréf til mennta- og barnamálaráðherra Gunnar Örn Vopnfjörð Þorsteinsson skrifar Skoðun Hvernig gerum við Grundarhverfi enn betra? Ævar Harðarson skrifar Skoðun Matvælaframleiðslulandið Ísland – er framtíð án sérþekkingar? Ólöf Guðný Geirsdóttir,Ólafur Ögmundarson skrifar Skoðun 120km hraði á Keflavíkurveginum og netsölur með áfengi Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Lausnin liggur fyrir – Landspítali þarf að stíga skrefið Sandra B. Franks skrifar Skoðun Auðbeldi SFS Örn Bárður Jónsson skrifar Skoðun Skjárinn og börnin Daðey Albertsdóttir,Silja Björk Egilsdóttir,Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun „Er stjúpmamma þín vond eins og í Öskubusku?“ Hafdís Bára Ólafsdóttir skrifar Skoðun Af hverju er Framsóknarfólk hamingjusamast? Árelía Eydís Guðmundsdóttir skrifar Sjá meira
Iðjuþjálfar í leik- og grunnskólum: Tækifæri í baráttunni gegn agavanda og skólaforðun Hekla Björt Birkisdóttir,Hrefna Dagbjört Arnardóttir,Inga Fríða Guðbjörnsdóttir,Íris Kristrún Kristmundsdóttir Skoðun
Skoðun Opið bréf til heilbrigðisráðherra: Iðjuþjálfar – mikilvægur mannauður í geðheilbrigðisþjónustu framtíðarinnar Erna Rut Elvarsdóttir,Lilja Logadóttir, Rebekka Lind Hjaltadóttir,Sandra Dís Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Iðjuþjálfar í leik- og grunnskólum: Tækifæri í baráttunni gegn agavanda og skólaforðun Hekla Björt Birkisdóttir,Hrefna Dagbjört Arnardóttir,Inga Fríða Guðbjörnsdóttir,Íris Kristrún Kristmundsdóttir skrifar
Skoðun Matvælaframleiðslulandið Ísland – er framtíð án sérþekkingar? Ólöf Guðný Geirsdóttir,Ólafur Ögmundarson skrifar
Iðjuþjálfar í leik- og grunnskólum: Tækifæri í baráttunni gegn agavanda og skólaforðun Hekla Björt Birkisdóttir,Hrefna Dagbjört Arnardóttir,Inga Fríða Guðbjörnsdóttir,Íris Kristrún Kristmundsdóttir Skoðun