Erlent

„Fólk var hérna öskrandi og æpandi á göngunum úr hræðslu“

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Guðmundur Pétur Yngvason gekk um Marrakesh í hádeginu, þar sem mikil eyðilegging blasti við.
Guðmundur Pétur Yngvason gekk um Marrakesh í hádeginu, þar sem mikil eyðilegging blasti við. Guðmundur Pétur Yngvason

Yfir þúsund fórust þegar gríðarlegur jarðskjálfti að stærð 6,8 reið yfir í Atlasfjöllum í Marokkó seint í gærkvöldi. Íslendingur rétt utan við Marrakesh lýsir mikilli skelfingu þegar jörð tók að hristast. Hann sé ýmsu vanur þegar kemur að jarðskjálftum en skjálftinn í gær hafi verið sá allra stærsti sem hann hafi upplifað.

Upptök jarðskjálftans voru um sjötíu kílómetra suðvestur af Marrakesh, mikilli ferðamannaborg, rétt eftir klukkan ellefu í gærkvöldi. Óttast er að tala látinna í hamförunum fari hækkandi - og samkvæmt upplýsingum frá marokkóskum yfirvöldum eru margir hinna látnu búsettir í fjallabyggðum sem afar erfitt er að ná til. 

Guðmundur Pétur segir borgarbúa einbeita sér að uppbyggingu eftir hamfarirnar.Guðmundur Pétur Yngvason

Guðmundur Pétur Yngvason, Íslendingur sem staddur er í fríi í borginni, lýsir mikilli eyðileggingu í Marrakesh á göngu sinni um borgina nú í hádeginu. Hann var á hóteli rétt utan við borgina þegar jarðskjálftinn reið yfir í gærkvöldi.

„Jesús, já. Þetta var risaskjálfti. Við búum nú í Hafnarfirði þannig að við höfum verið svolítið í skjálftum upp á síðkastið en þetta var alveg á nýju leveli. Enda var hann 6,8 að stærð, og mér skilst að það sé hundrað sinnum stærra en sá sem var stærstur fyrir eitt af gosunum,“ segir Guðmundur.

„Það fór allt á reiðiskjálf, hurðir og gluggar hristust og það komu hérna fullt af sprungum í húsið. Frammi á gangi þar sem eru samskeyti á húsinu hrundi allt í sundur. Fólk var hérna öskrandi og æpandi á göngunum úr hræðslu,“ segir Guðmundur.

Mikil sorg

Heimamenn séu greinilega í áfalli.

„Það er bara í sjokki, það er dapurt, þau voru í alla nótt að reyna að hafa upp á ættingjum sínum og hugsa um starfsfólkið og gestina. Þegar þú ert á 300 herbergja hóteli þarf að hugsa um gestina þegar koma hérna 700 manns gargandi út úr herbergjunum sínum. Það eru bara allir hérna í losti og bara daprir. Maður finnur það yfir öllu.“

Marrakesh er afar vinsæll áfangastaður ferðamanna og talsverður fjöldi Íslendinga er á svæðinu. Íslenska borgaraþjónustan hvetur þá til að láta vita af sér, fylgjast vel með fjölmiðlum á staðnum og virða lokanir á hamfarasvæðum. Þá eru Íslendingar á svæðinu jafnframt hvattir til að hringja í neyðarnúmer borgarþjónustunnar ef aðstoðar er þörf.


Tengdar fréttir

Hvetja Íslendinga til að láta vita af sér

Íslendingar í Marokkó eru hvattir til að láta vita af sér á samfélagsmiðlum eða með því að hafa samband við aðstandendur séu þeir öryggir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×