Lífið

Skulfu á beinunum á for­sýningu Kulda

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Selma Björnsdóttir, Sigurjón Sighvatsson, Ólöf Halla Jóhannesdóttir, Erlingur Óttar Thoroddsen og Álfrún Örnólfsdóttir.
Selma Björnsdóttir, Sigurjón Sighvatsson, Ólöf Halla Jóhannesdóttir, Erlingur Óttar Thoroddsen og Álfrún Örnólfsdóttir. Hulda Margrét

Fjöldi fólks skalf á beinunum á forsýningu íslensku hrollvekjunnar Kulda í Smárabíói í gærkvöldi. Kvikmyndin er byggð á sam­nefndri met­sölu­bók Yrsu Sig­urðardótt­ur frá árinu 2012. 

Í aðalhluverkum eru þau Jóhannes Haukur Jóhannesson, Elín Hall, Selma Björnsdóttir, Mikael Kaaber, Sara Dögg Ásgeirsdóttir og Halldóra Geirharðsdóttir. Auk þess fer Ólöf Halla Jóhannesdóttir, dóttir Jóhannesar Hauks, með stórt hlutverk í myndinni sem dóttir hans.

Erlingur Óttar Thoroddsen er leikstjóri og handritshöfundur myndarinnar. Hann ávarpaði gesti ásamt Sigurjóni Sighvatssyni sem framleiðir myndina ásamt Heather Millard. Dúndrandi lófaklapp var að sýningu lokinni og voru leikarar heiðraðir með blómum.

Að sýningu lokinni var haldið í eftirpartý í Gym og Tonic salinn á Kex hostel þar sem aðstandendur myndarinnar litu yfir framleiðslutímabilið og skáluðu. 

Selma Björnsdóttir, Kolbeinn Tumi Daðason og Andrea Sigurðardóttir.Hulda Margrét
Björk Eiðsdóttir og Karl Ægir.
Mikael Kaaber og Svala.Hulda Margrét
Systkinin Andri Snær og Nína Dögg.Hulda Margrét
Aníta Rós og Ísabella Rós.Hulda Margrét.
Mikill fjöldi mætti á forsýninguna í gærkvöldi.Hulda Margrét
Jón friðrik og Friðrik ÓmarHulda Margrét.
Íris og Tómas.Hulda Margrét
Ásgeir Kolbeins og Hera.Hulda Margrét.
Anna Lára, Erlingur og Arnar Jökull.Hulda Margrét
Rakel og Nína.Hulda Margrét.
Ólöf slær í gegn í myndinni. Hér er hún umvafin vinkonunum Marí og Unni.Hulda Margrét.
Leikkonurnar Selma og Álfrún.Hulda Margrét.
Helen Inga, Hrafntinna og Ásgrímur.Hulda Margrét
Snæþór Bjarki og Guðjón Smári.Hulda Margrét
Baldur, Jana og Matthías.Hulda Margrét.
Hulda Margrét.
Melkorka og Guðrún Edda.Hulda Margrét.

Eins og áður segir er myndin byggð á samnefndri bók Yrsu Sigurðardóttur, en síðasta kvikmynd sem byggð var á verkum Yrsu var hrollvekjan Ég man þig og var henni vel tekið í íslenskum kvikmyndahúsum.


Tengdar fréttir

Yrsa gaf Sigur­jóni og Erlingi nýjan Kulda

Yrsa Sigurðardóttir afhenti Sigurjóni Sighvatssyni og leikstjóranum Erlingi Óttari Thoroddsen fyrstu eintökin af nýrri útgáfu af spennusögunni Kulda. Samnefnd bíómynd þeirra félaga, byggð á bókinni, kemur í bíó 1. september.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.