Menning

Gildran valin bæjarlistamaður

Eiður Þór Árnason skrifar
Meðlimir Gildrunnar ásamt Regínu Ásvaldsdóttur bæjarstjóra og Hrafnhildi Gísladóttur, formanni menningar- og lýðræðisnefndar Mosfellsbæjar.
Meðlimir Gildrunnar ásamt Regínu Ásvaldsdóttur bæjarstjóra og Hrafnhildi Gísladóttur, formanni menningar- og lýðræðisnefndar Mosfellsbæjar. Raggi Óla

Hljómsveitin Gildran hefur verið útnefnd bæjarlistamaður Mosfellsbæjar árið 2023. Hljómsveitin hefur gefið út sjö plötur og hóf stór hluti meðlima tónlistarferil sinn sem unglingar í Gagnfræðaskóla Mosfellsbæjar en Gildran var stofnuð árið 1985.

Þórhallur Árnason, Karl Tómasson, Birgir Haraldsson og Sigurgeir Sigmundsson mynda hljómsveitina. Menningar- og lýðræðisnefnd Mosfellsbæjar sér um val bæjarlistamanns ár hvert og veitti Hrafnhildur Gísladóttir, formaður nefndarinnar hljómsveitinni verðlaunagrip eftir listakonuna Ingu Elínu ásamt viðurkenningarfé í lok bæjarhátíðarinnar Í túninu heima.

Greint er frá þessu í fréttatilkynningu frá Mosfellsbæ en Gildran starfaði í áratugi í sveitarfélaginu og verið órjúfanlegur hluti af menningarlífi þess, að sögn bæjaryfirvalda.

Hljómsveitin hafi stutt við menningarlíf í Mosfellsbæ á umliðnum árum og leikið á fjölda styrktartónleika fyrir félagasamtök í bænum. Þá hafi Gildran samið lag íþróttafélagsins Aftureldingar og veitt félaginu peningagjöf vegna fyrsta gervigrasvallarins í Mosfellsbæ.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.