Viðskipti innlent

Metdagur í pizzasölu hjá Domino's

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Garðbæingar voru sólgnir í Domino's-pizzu eins og aðrir.
Garðbæingar voru sólgnir í Domino's-pizzu eins og aðrir. Vísir/Nanna Guðrún

Domino's á Íslandi fagnaði í gær þrjátíu ára afmæli með því að bjóða upp á verð frá 1993. Eftirspurnin var slík að loka þurfti fyrir pantanir klukkan hálf sjö en þá var biðtími sums staðar kominn upp í þrjá klukkutíma. Aldrei hafa selst jafn margar pizzur og í gær.

Magnús Hafliðason, forstjóri Domino‘s á Íslandi, segir í samtali við Vísi að enn sé verið að taka saman endanlegar tölur um söluna í gær en að áætlað sé að rúmlega 25 þúsund pítsur hafi verið seldar. 

Þá segir hann að gærdagurinn hafi verið sá stærsti frá upphafi, jafnt í fjölda pantana og fjölda pizza. Magnið sé einsdæmi á þrjátíu árum.

Aðspurður um hvaða pítsur hafi verið vinsælastar í gær segir Magnús að það hafi verið mjög blandað en að útlit sé fyrir að Domino's Extra og Domino's Pepperoni hafi verið vinsælastar. Boðið var upp á átta pítsur sem voru á upprunalegum matseðli Domino's þegar opnaði 16. ágúst árið 1993.

Einhverjar vörur verði ekki fáanlegar

Magnús segist harma langa bið og þá staðreynd að allir hafi ekki náð að panta sér pizzu. Hins vegar hafi Domino's einfaldlega orðið uppiskroppa með deig og því ekki getað selt fleiri pizzur. 

Einnig segir hann að vegna mikillar eftirspurnar í gær megi reikna með að einhverjar vörur verði ekki fáanlegar í dag. 

Þá kemur fram að í næstu viku muni Domino's halda áfram að fagna afmælinu með sérstakri afmælis-Megaviku þar sem bryddað verður upp á ýmsu óhefðbundnu í tilefni afmælisins.

Í fréttatilkynningu frá Domino's segir að reikna megi með því að um það bil fjórði hver landsmaður hafi gætt sér á pizzu frá Domino's í gær. Það er býsna erfitt að sannreyna slíkar yfirlýsingar, sérstaklega þegar sölutölur liggja ekki fyrir. En það hafa greinilega margir gætt sér á Domino's-pizzu í gær.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×