Sigurveig úr Íslandsbanka í Landstólpa Máni Snær Þorláksson skrifar 15. ágúst 2023 15:08 Sigurveig Sigurðardóttir hefur verið ráðin sem fjármálastjóri Landstólpa. Aðsend Sigurveig Sigurðardóttir hefur verið ráðin sem nýr fjármálastjóri Landstólpa og mun hefja störf þar um næstu mánaðarmót. Sigurveig fer í Landstólpa úr Íslandsbanka þar sem hún starfaði sem viðskiptastjóri á Selfossi.
Sigurveig útskrifaðist með BS-próf í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands árið 1998 og var í kjölfarið ráðin sem þjónustustjóri Íslandsbanka á Selfossi. Hún var svo ráðin viðskiptastjóri þar árið 2002. „Ég hef í störfum fyrir bankann kynnst fjölda fólks og fyrirtækja í öllum atvinnugreinum á svæðinu, þar á meðal Landstólpa,“ er haft eftir Sigurveigu í tilkynningu. Hún segir að þegar henni hafi boðist starf hjá Landstólpa hafi hún ekki þurft að hugsa sig lengi um. „Eigendur þess eru harðduglegir frumkvöðlar með mörg járn í eldinum sem ég hlakka til að starfa með. Meira að segja hlakka ég til þeirrar tilbreytingar að aka daglega í 20 mínútur til og frá vinnustaðnum í stað í stað þess að sækja vinnu í nokkur hundruð metra fjarlægð frá heimilinu!“ Aðsetur Landstólpa er á Gunnbjarnarholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi og er með fjölbreytta starfsemi og þjónustu sem nær til landsins alls. Starfsmenn eru um fjörutíu talsins en auk þess eru um tuttugu verktakar að störfum þar. Fram kemur í tilkynningunni að Landstólpi hafi velt um 2,6 milljörðum króna. Helmingur veltunnar hafi verið á mannvirkjasviði og þar hugsar Arnar Bjarki Eiríksson, stofnandi og framkvæmdastjóri Landstólpa, að Sigurveig muni láta til sín taka. „Sigurveig er grandvör og traust og ég vænti mikils af þekkingu hennar og reynslu, til dæmis við að skerpa á áherslum starfsviðanna hjá okkur og straumlínulaga enn frekar einstaka þætti og reksturinn í heild. Alltaf er gott að fá ferska, utanaðkomandi sýn á uppbyggingu fyrirtækis og starfsemi til að þróa það markvisst, vel og örugglega,“ er haft eftir Arnari.
Vistaskipti Íslandsbanki Skeiða- og Gnúpverjahreppur Ölfus Mest lesið Selja fyrsta bjórinn ekki fyrr en í ágúst Viðskipti innlent Stærsti Hiab krani í heimi á sumarsýningu Veltis Samstarf Helmingaði kostnaðinn við matarinnkaup Neytendur Í áfalli yfir dýrari dekkjum og Hlöllabát Neytendur Tekur við fjármálunum hjá Securitas Viðskipti innlent Karen Ýr ráðin gæðastjóri Viðskipti innlent 96 sagt upp í hópuppsögnum í júní Viðskipti innlent Biðin eftir vaxtalækkun gæti lengst enn frekar Viðskipti innlent Ómar fær fyrir ferðina Neytendur Betra en ekki að viðurkenna mistökin Atvinnulíf Fleiri fréttir 96 sagt upp í hópuppsögnum í júní Tekur við fjármálunum hjá Securitas Selja fyrsta bjórinn ekki fyrr en í ágúst Karen Ýr ráðin gæðastjóri Biðin eftir vaxtalækkun gæti lengst enn frekar Minna nú á skoðun ökutækja á Ísland.is Alvotech reiknar með tíföldum tekjum Útflutningsverðmæti eldislaxins meiri en loðnunnar Opna baðstað í Kerlingarfjöllum um helgina Svekkjandi uppgjör og aðstoðarforstjórinn látinn róa Arion banki greiði Seðlabankanum 585 milljónir Rannveig hættir í Seðlabankanum Íslensk hugbúnaðarlausn greinir kolefnisspor innkaupa fyrirtækja Flýta ekki vaxtaákvörðun þrátt fyrir áköll Flestar íbúðir seljist undir eða á auglýstu verði Ýmir Örn fer frá N1 Verðbólga nú 5,8 prósent Icelandair kaupir Airbus flughermi Í maí voru 5800 atvinnulausir Snúa vörn í sókn og kynna eldfjallaleið fyrir ferðamenn Andri Þór Viðskiptafræðingur ársins 2024 Hafa ekki nokkrar áhyggjur af fækkun ferða Seldu til rannsóknarrisa: „Maður þarf að vera draumóramaður“ Gugga í Gatsby kveður: „Margar konur búnar að skæla hérna inni“ Wok on-veldið falt Unnur vaktar fjármálin í Danmörku Húrra Reykjavík opnar á Keflavíkurflugvelli Bein útsending: Kynna yfirtökutilboðið Gefa út kynjað skuldabréf Sóttu rúman milljarð í fjármögnun Sjá meira