Neytendur

Í­búar Hellu þreyttir á „sturluðu“ verð­lagi Kjör­búðarinnar

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Verð á kattanammi frá Whiskas er nær níuhundruð prósent hærra í Kjörbúðinni á Hellu en í Fjarðarkaupum.
Verð á kattanammi frá Whiskas er nær níuhundruð prósent hærra í Kjörbúðinni á Hellu en í Fjarðarkaupum. Facebook/Elín Dögg

Elín Dögg Arnarsdóttir, íbúi í nágrenni við Hellu, lýsir verðlagi í Kjörbúðinni á Hellu sem sturlun en 637 krónum munar á verði á kattanammi þar og í Fjarðarkaupum. Hún segir íbúa Hellu gagngert sneiða framhjá því að versla í búðinni meðan vonir eru bundnar við opnun annarrar ódýrari matvöruverslunar í bæjarfélaginu.

„Verðlagið var frekar sanngjarnt fyrst þegar þau opnuðu en svo hafa þau hækkað það hægt og hljótt upp úr öllu valdi,“ segir Elín í samtali við Vísi. Kjörbúðin opnaði í júní 2021. „Þeir lofuðu öllu fögru þegar Kjörbúðin opnaði, en varðandi vöruverð hafa þeir skitið upp á bak.“

„Fólk er farið að fara í Hvolsvöll eða á Selfoss til þess að versla. Það notar þessa búð í neyð ef það gleymist til dæmis að kaupa mjólk,“ segir Elín um íbúa Hellu, sem eru að hennar sögn orðnir þeyttir á verðlagi Kjörbúðarinnar.

Mörg dæmi um hátt verð

Elín segir sveitarstjórnina hafa beitt sér fyrir því að önnur búð yrði opnuð í bænum. Til að mynda eigi Hagar hf. lóð í bænum og því vonist íbúar til þess að einn daginn rísi þar Bónusverslun.

Elín nefnir fleiri dæmi um gríðarlegan verðmun á vörum í Kjörbúðinni og öðrum búðum. Kaffi frá framleiðandanum Dolce Gusto kosti um fimmhundruð krónum meira en í verslun Nettó, og sé í þokkabót ódýrara í vegasjoppu sem staðsett er í nágrenni við Hellu. „Þegar vegasjoppan er orðin ódýrari, þá er nú mikið sagt,“ segir Elín.

Þá segist hún hafa heyrt að mjólkurfernan sé um 130 krónum dýrari í Kjörbúðinni heldur en í Krónunni á Hvolsvelli.

Uppfært: Verðið á umræddri vöru hefur nú hækkað í Fjarðarkaupum og framkvæmdastjóri verslunar- og mannauðssviðs hefur gefið frá sér skriflegt svar við fyrirspurnum fréttamanns. Sjá hér að neðan:






Fleiri fréttir

Sjá meira


×