Erlent

Lífs­föru­nautur Söndru Bullock látinn eftir þriggja ára bar­áttu við ALS

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Bullock og Randall á frumsýningu Oceans 8 í New York árið 2018.
Bullock og Randall á frumsýningu Oceans 8 í New York árið 2018.

Bryan Randall, maðurinn sem leikkonan Sandra Bullock kallaði „ástina í lífi sínu“, lést á laugardag. Í tilkynningu frá fjölskyldu Randall sagði að hann hefði greinst með ALS fyrir þremur árum.

Hann var 57 ára þegar hann lést.

Randall var ljósmyndari og hófst samband hans og Bullock þegar hann var ráðinn til að mynda afmælisveislu sonar hennar Louis árið 2015. Þau sáust saman seinna sama ár, meðal annars í brúðkaupi Jennifer Aniston og Justin Theroux.

Bullock ættleiddi Louis, 13 ára, og Lailu, 10 ára, á meðan hún var einhleyp en sagði í viðtali árið 2021 að hún og Randall væru að ala upp þrjú börn saman. Sjálfur átti Randall eina dóttur fyrir.

Um hjónband sagðist Bullock ekki þurfa pappír til að sýna og sanna að hún væri góð móðir og maki.

„Það þarf ekki að segja mér að vera til staðar þegar hlutirnir eru erfiðir. Það þarf ekki að segja mér að standa af mér storminn við hlið góðs manns,“ sagði hún.

ALS er skammstöfun fyrir „amylotrophic lateral sclerosis“ en um er að ræða algegnasta form hreyfitaughrörnunar; „motor neuron disease“. Sjúkdómurinn er oft kenndur við hafnaboltakappann Lou Gehrig.

ALS hefur áhrif á hreyfitaugunga sem liggja frá miðtaugakerfi til vöðva.

„Fyrstu einkenni eru oftast slappleiki í vöðvum fót- og handleggja, krampar í höndum og fótum, auk þess sem tal verður erfiðara. Sumir fara einnig að hlæja eða gráta af litlu sem engu tilefni, eða finnst þeir skyndilega þurfa að geispa. Framvinda sjúkdómsins er þannig að vöðvar verða sífellt slappari þar til þeir að lokum lamast. Með tímanum versnar hæfni til tals enn frekar og einstaklingar eiga í erfiðleikum með að kyngja. Á endanum veldur mikil rýrnun eða lömun öndunarfæravöðva dauða,“ segir um ALS á Vísindavefnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×