Erlent

Eyddi formúgu fjár í Taylor Swift-miða sem voru ekki til

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Eras-tónleikaferðalag Taylor Swift hefur notið gríðarlega vinsælda enda á hún stóran fylgjendahóp sem gengur jafnan undir nafninu Swifties.
Eras-tónleikaferðalag Taylor Swift hefur notið gríðarlega vinsælda enda á hún stóran fylgjendahóp sem gengur jafnan undir nafninu Swifties. Getty/Terry Wyatt

Miðar á yfirstandandi tónleikaferðalag Taylor Swift eru illfáanlegir og rándýrir vegna endursölusíðna. Bandarísk kona sem keypti miða á 1.400 dali (um 180 þúsund íslenskra króna) uppgötvaði eftir kaupin að miðarnir voru ekki til.

Eftirspurn eftir miðum á The Eras Tour, tónleikaferðalag Swift, hefur verið gríðarleg og hafa miðar yfirleitt selst upp um leið og þeir fara í sölu. Fréttamiðillinn The Wall Street Journal spáir því að tónleikaferðalagið veðir það fyrsta í sögunni sem halar inn milljarði Bandaríkjadala.

Þá hafa verið mikil vandræði með sölusíðuna TicketMaster sem sér um opinbera miðasölu fyrir tónleikaferðalagið. Sú síða hefur ítrekað brugðist og legið niðri vegna eftirspurnar eftir miðum.

Þeir sem ná ekki að kaupa miða strax þurfa að leita á náðir endursöluaðila sem smyrja vel ofan á verðið. Þar getur miðaverð farið upp í mörg hundruð þúsund krónur. 

Stefanie Klein, Kaliforníubúi, ætlaði að kaupa miða fyrir dóttur sína á tónleikaferðalag Swift og endaði á að sölusíðunni StubHub. Þar keypti hún miða fyrir 1.400 Bandaríkjadali (sirka 184 þúsund íslenskra króna). 

Eftir kaupin hafði StubHub hins vegar samband og greindi henni frá því að seljandinn væri ekki með miðana sem hún hafði borgað fyrir. Þeir væru ekki til.

Tryggingin reyndist innantóm

StubHub er með tryggingu sem á að verja kaupendur og bæta þeim upp fyrir tap lendi þeir í svindlurum. Kaupendur eiga þá að fá endurgreitt að fullu að viðbættum tuttugu prósentum af miðaverðinu. Klein var því viss um að hún fengi peninginn sinn endurgreiddan.

Taylor Swift er einn vinsælasti tónlistarmaður heims.Getty/Amy Sussman

Það var ekki raunin heldur lenti Klein í vítahring símhringinga þar sem hún var send á millið ólíkra aðila og fékk hvorki svör né lausnir vegna vandamála sinna. Hún segir að trygging StubHub hafi ekkert varið sig tapi.

„Ég fékk að heyra skýringu eftir skýringu, afsökun eftir afsökun eftir afsökun. Það var ekkert annað sem ég fékk frá þjónustuverinu. Þetta gaf mér háan blóðþrýsting, ég gat ekki gert þetta lengur. Ég gat ekki eytt dýrmætum tíma mínum að rífast aftur og aftur,“ sagði Klein í viðtali við NBC Los Angeles.

Það var ekki fyrr en eftir að fréttamiðillinn NBC hafði samband við StubHub til að rannsaka málið sem Klein fékk loksins endurgreitt. Það er þó spurning hvort aðrir aðdáendur sem hafa lent í sambærilegum prettum séu jafnheppnir og Klein.


Tengdar fréttir

Taylor Swift kemur að­dá­endum ræki­lega á ó­vart

Söngkonan Taylor Swift tilkynnti í dag að hún hygðist gefa út fjögur glæný lög á miðnætti í tilefni af tónleikaferðalagi hennar, þar sem hún fylgir eftir plötunni „miðnætti“ (e. Midnight).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×