Körfubolti

Davis gerir risasamning við Lakers

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Davis hlær alla leið í bankann.
Davis hlær alla leið í bankann. vísir/getty

Los Angeles Lakers tók ekki í mál að missa Anthony Davis frá sér og galopnaði veskið til þess að halda honum.

Davis var að renna inn í lokaárið á gamla samningnum sínum sem átti að færa honum 40 milljónir dollara í vasann.

Í staðinn fær hann nýjan þriggja ára samning þar sem færir honum 186 milljónir dollara inn á bankabókina. Það eru 24,5 milljarðar króna.

Er samningurinn rennur út mun Davis hafa þénað 270 milljónir hjá Lakers. Hann verður hjá 35 ára gamall er nýi samningurinn rennur út.

Hann hefði getað kastað teningunum og fengið mögulega meiri pening næsta sumar en hann kaus öryggið og skrifaði undir nýjan samning.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×