Enski boltinn

Gvardiol fór í læknisskoðun hjá meisturunum í dag

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Að styrkja vörnina.
Að styrkja vörnina. vísir/getty

Englandsmeistarar Manchester City eru að styrkja varnarlínuna fyrir komandi átök í ensku úrvalsdeildinni sem hefst um næstu helgi.

Króatíski varnarmaðurinn Josko Gvardiol gekkst undir læknisskoðun hjá meisturunum í dag og verður kynntur sem nýr leikmaður félagsins á allra næstu klukkustundum.

Pep Guardiola, stjóri Man City, staðfesti tíðindin á blaðamannafundi í dag.

Enskir fjölmiðlar telja sig hafa heimildir fyrir því að þýska úrvalsdeildarliði RB Leipzig hafi loksins samþykkt tilboð upp á 78 milljónir punda í morgun en viðræður á milli félaganna hafa staðið yfir í allt sumar.

Gvardiol er 21 árs gamall og hefur leikið með RB Leipzig frá árinu 2020 eftir að hafa komið frá Dinamo í heimalandinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×