Enski boltinn

United vill fá allt að fimmtíu milljónir punda fyrir McTominay

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Scott McTominay hefur leikið rúmlega tvö hundruð leiki fyrir Manchester United.
Scott McTominay hefur leikið rúmlega tvö hundruð leiki fyrir Manchester United. getty/Al Bello

Manchester United vill fá allt að fimmtíu milljónir punda fyrir Scott McTominay.

Skoski landsliðsmaðurinn er á óskalista West Ham United sem á nægan tíma eftir að hafa selt Declan Rice til Arsenal fyrir 105 milljónir punda. Harry Maguire, fyrrverandi fyrirliði United, hefur einnig verið orðaður við West Ham.

Hamrarnir munu þurfa að punga út ansi vænni upphæð til að fá McTominay en United hefur sett fjörutíu til fimmtíu milljóna punda verðmiða á hann. United freistar þess ekki að losna við McTominay en gæti selt hann ef gott tilboð berst.

McTominay, sem er 26 ára, á tvö ár eftir af samningi sínum við United. Skotinn er uppalinn hjá félaginu og hefur verið hjá því síðan hann var fimm ára.

Fred, sem spilaði oft á miðjunni með McTominay undir stjórn Oles Gunnars Solskjær, er væntanlega á förum frá United sem hefur verið orðað við Sofyan Amrabat, miðjumann Fiorentina.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×