Varðskip Færeyinga eltu skip Watsons úr lögsögu Færeyja Kristján Már Unnarsson skrifar 21. júlí 2023 23:44 Varðskipið Brimil siglir hraðbyri til móts við skip Watsons. Kringvarpið/Uni Leitisstein Hansen Færeyingum virðist hafa tekist að hrekja Paul Watson, stofnanda Sea Shepherd-samtakanna, burt frá Færeyjum þetta sumarið eftir að skip hans gerði tvær misheppnaðar tilraunir til að hindra grindhvalaveiðar Færeyinga.
Í fréttum Stöðvar 2 voru sýndar myndir Kringvarps Færeyja af eftirför tveggja færeyskra varðskipa að skipi Paul Watsons, sem þekktastur er hérlendis fyrir skemmdarverkaárás gegn Hval hf. í nóvember 1986. Þá var tveimur hvalbátum sökkt í Reykjavíkurhöfn og spellvirki unnin í hvalstöðinni í Hvalfirði. Í fyrrasumar sagði hann skilið við Sea Shepherd-samtökin eftir að verið settur þar til hliðar. Í sumarbyrjun bárust þær fregnir að hann hefði fengið sér nýtt skip, John Paul De Joria, og væri á leiðinni til Íslands til að stöðva hvalveiðar Íslendinga. Hann var kominn langleiðina að íslensku lögsögunni þegar Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra tók af honum ómakið þann 20. júní. Paul Watson virðist hafa beðið átekta við Íslandsmið í um hálfan mánuð áður en hann sneri sér að Færeyingum. Þann 7. júlí kom hann að færeysku lögsögunni og þegar fréttist af grindhvaladrápi við Þórshöfn þann 9. júlí lét hann til skarar skríða, sigldi skipi sínu inn til Þórshafnar, en kom of seint því drápið var yfirstaðið. Watson og menn hans náðu þó að taka myndir af blóðugum sjónum áður en þeir hröðuðu sér aftur út fyrir tólf mílurnar. Eftir þessa uppákomu virðast bæði færeysk og dönsk stjórnvöld hafa ákveðið að hafa betri gætur á skipi Watsons. Danska herskipið Hvítabjörninn hélt sig nærri en einnig færeysku varðskipin. Varðskip Færeyinga, Tjaldrið, eltir skip Watsons á Sköpunarfirði.Kringvarpið/Uni Leitisstein Hansen Í fyrradag braut Watson aftur gegn banni um að koma inn fyrir tólf mílna lögsögu Færeyja þegar fréttist af grind í Sandavogi. Í þetta sinn voru tvö varðskip Færeyinga viðbúin, Brimil og Tjaldrið, og birti Kringvarp Færeyja myndir þar sem þau sáust sigla hraðbyri til móts við skip Watsons. Þegar varðskipin nálguðust stökk Watson á flótta og forðaði sér út úr lögsögunni. Segir Kringvarpið skip hans núna á siglingu suður á bóginn austan Bretlandseyja og hafi sett stefnuna á Lissabon í Portúgal. Málinu er þó ekki lokið því færeysk yfirvöld kærðu skipstjóra John Paul De Joria fyrir að hafa þrívegis brotið gegn banni um að sigla inn fyrir tólf mílurnar. Hann var boðaður fyrir rétt í Færeyjum í gær en mætti ekki og ákvað dómarinn þá að sekta hann um 75 þúsund danskar krónur fyrir brotið, andvirði um 1,5 milljóna íslenskra króna. Auk þess var hann dæmdur til að greiða tvöþúsund krónur danskar í sekt fyrir brot gegn útlendingalögum og fimmþúsund danskar krónur í sekt fyrir brot gegn tollalögum, eða samtals um 140 þúsund íslenskar krónur. Aðrir 27 áhafnarmeðlimir voru einnig sektaðir fyrir brot gegn útlendingalögum. Ákæruskjalið var sent til siglingamálayfirvalda á Jamaica, heimalandi skipsins, sem sögð eru hafa komið því áfram til skipstjórans.
Færeyjar Hvalveiðar Hvalir Dýr Umhverfismál Sjávarútvegur Landhelgisgæslan Danmörk Tengdar fréttir Farþegar þurftu að horfa upp á grindhvaladráp Breska skemmtiferðaskipafélagið Ambassador Cruise Lines hefur beðið farþega sína afsökunar fyrir að láta þá verða vitni að grindhvaladrápi. Meirihluti farþeganna var í uppnámi eftir atvikið. 18. júlí 2023 13:46 Paul Watson ánægður með Svandísi Paul Watson segir að hann ætli að hinkra við með skip sitt í bili á Íslandsmiðum ef ske kynni að Kristján Loftsson leggi af stað á miðin með hvalfangara sína. 20. júní 2023 13:42 Paul Watson segir hvalveiðar Íslendinga stjórnast af þráhyggju eins manns Paul Watson fyrrverandi leiðtogi Sea Shepard samtakanna sem sökktu tveimur hvalbátum í Reykjavíkurhöfn árið 1986 nálgast Íslandsmið til að trufla veiðar Hvals hf. í sumar. Hópur fólks úr Hvalavinum koma saman til mótmæla við hvalbátana seinni partinn í dag en nú er verið að undirbúa þá til veiða. 19. júní 2023 19:21 Watson og hans menn munu bíða Kristjáns í mynni Hvalfjarðar Skip aktívistans Paul Watson John Paul De Joria er nú á rúmsjó, einhver staðar miðja vegu milli Nýfundnalands og Íslands. Vísir náði sambandi við skipstjóra skipsins sem heitir Lockhard MacLean. 19. júní 2023 17:17 „Enginn hefur gagnast Kristjáni Loftssyni betur en Paul Watson“ Ýmislegt bendir til þess að skip aktívistans Pauls Watson sé á leið til Íslands. Ekki bara eru það hvalfangarar sem hafa horn í síðu hins umdeilda manns heldur umhverfisverndarsinnar einnig. 19. júní 2023 13:01 Gæslan meðvituð um ferðir og fyrirætlanir Watson og félaga Landhelgisgæslan er meðvituð um ferðir skipsins John Paul Dejoria og kunnugt um þær yfirlýsingar sem áhöfn þess hefur gefið í fjölmiðlum, segir í skriflegu svari Gæslunnar við fyrirspurn fréttastofu. 19. júní 2023 11:37 Óvinur þjóðarinnar númer eitt er á leiðinni Paul Watson hjá samtökunum Sea Shepherd er á leið til landsins. Hann hefur löngum talist einn helsti óvinur þjóðarinnar, einn sá sem þjóðinni er helst í nöp við, en það kann að hafa breyst eftir að út spurðist um ómannúðlegar veiðar á hvölum. 19. maí 2023 12:06 Hyggjast gera allt til að stöðva hvalveiðar Íslendinga í eitt skipti fyrir öll Paul Watson, stofnandi baráttusamtakana Sea Shepherd, hyggst sigla skipinu John Paul Dejoria hingað til lands í apríl og gera allt sem í valdi hans stendur til að stöðva hvalveiðar við Ísland. 28. mars 2023 11:54 Mest lesið Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Erlent Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Erlent „Kurr í greininni í dag um að þetta skuli hvort tveggja vera á matseðlinum“ Innlent Yfirgaf jólatónleika í sjúkrabíl Innlent Færeyingar fagna tvennum göngum Erlent Þakklæti, auðmýkt, rok og söngur ríkisstjórnarinnar Innlent Íslenskur skurðlæknir hlúir að fólki í Magdeburg Erlent Mest skreytta jólahúsið í Hveragerði Innlent Breytingar á ráðuneytum taka ekki gildi fyrr en í mars Innlent „Mjög þunn súpa, lítið í henni“ Innlent Fleiri fréttir Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Færeyingar fagna tvennum göngum Íslenskur skurðlæknir hlúir að fólki í Magdeburg Mótmælt á meðan minningarathöfn stóð yfir „Þetta var gjörsamlega hræðilegt“ Fimm látnir og tvö hundruð særðir Koma naumlega í veg fyrir stöðvun ríkisreksturs Fimmtugur geðlæknir ók bílnum Heyrðu í þyrlum og öskrum út um gluggann Bifreið ekið á hóp fólks á jólamarkaði Hefja aftur leit að MH370 rúmum tíu árum eftir hvarfið Vara við upprisu ISIS Sjö ára stúlka stungin til bana í skóla Zagreb Eins og Pelicot hafi geymt glæpina á hörðu drifi í huga sínum Repúblikanar höfnuðu fjárlagafrumvarpi sem Trump studdi Sænskur rappari skotinn til bana í bílastæðahúsi Skoða hvort stunguárás hafi átt að líkjast morðinu í New York Mangione líka ákærður af alríkissaksóknurum Saksóknari sagður óhæfur í síðasta málinu gegn Trump Þrjátíu og fimm börn tróðust undir á jólahátíð Danskt sjúkrahús kært til lögreglu vegna tilrauna á ungum drengjum Musk og Trump valda uppnámi í Washington Skorar vestrið á hólm í 21. aldar einvígi Vaktin: Dominique Pelicot dæmdur í tuttugu ára fangelsi Hætta að rukka í almenningssamgöngurnar Dómar yfirvofandi í máli Pelicot Ætla að birta Gaetz-skýrsluna eftir allt saman Hæstiréttur staðfestir dóm yfir Sarkozy Segir sýrlensku þjóðina þreytta og vilja fá að lifa í friði Sjá meira
Farþegar þurftu að horfa upp á grindhvaladráp Breska skemmtiferðaskipafélagið Ambassador Cruise Lines hefur beðið farþega sína afsökunar fyrir að láta þá verða vitni að grindhvaladrápi. Meirihluti farþeganna var í uppnámi eftir atvikið. 18. júlí 2023 13:46
Paul Watson ánægður með Svandísi Paul Watson segir að hann ætli að hinkra við með skip sitt í bili á Íslandsmiðum ef ske kynni að Kristján Loftsson leggi af stað á miðin með hvalfangara sína. 20. júní 2023 13:42
Paul Watson segir hvalveiðar Íslendinga stjórnast af þráhyggju eins manns Paul Watson fyrrverandi leiðtogi Sea Shepard samtakanna sem sökktu tveimur hvalbátum í Reykjavíkurhöfn árið 1986 nálgast Íslandsmið til að trufla veiðar Hvals hf. í sumar. Hópur fólks úr Hvalavinum koma saman til mótmæla við hvalbátana seinni partinn í dag en nú er verið að undirbúa þá til veiða. 19. júní 2023 19:21
Watson og hans menn munu bíða Kristjáns í mynni Hvalfjarðar Skip aktívistans Paul Watson John Paul De Joria er nú á rúmsjó, einhver staðar miðja vegu milli Nýfundnalands og Íslands. Vísir náði sambandi við skipstjóra skipsins sem heitir Lockhard MacLean. 19. júní 2023 17:17
„Enginn hefur gagnast Kristjáni Loftssyni betur en Paul Watson“ Ýmislegt bendir til þess að skip aktívistans Pauls Watson sé á leið til Íslands. Ekki bara eru það hvalfangarar sem hafa horn í síðu hins umdeilda manns heldur umhverfisverndarsinnar einnig. 19. júní 2023 13:01
Gæslan meðvituð um ferðir og fyrirætlanir Watson og félaga Landhelgisgæslan er meðvituð um ferðir skipsins John Paul Dejoria og kunnugt um þær yfirlýsingar sem áhöfn þess hefur gefið í fjölmiðlum, segir í skriflegu svari Gæslunnar við fyrirspurn fréttastofu. 19. júní 2023 11:37
Óvinur þjóðarinnar númer eitt er á leiðinni Paul Watson hjá samtökunum Sea Shepherd er á leið til landsins. Hann hefur löngum talist einn helsti óvinur þjóðarinnar, einn sá sem þjóðinni er helst í nöp við, en það kann að hafa breyst eftir að út spurðist um ómannúðlegar veiðar á hvölum. 19. maí 2023 12:06
Hyggjast gera allt til að stöðva hvalveiðar Íslendinga í eitt skipti fyrir öll Paul Watson, stofnandi baráttusamtakana Sea Shepherd, hyggst sigla skipinu John Paul Dejoria hingað til lands í apríl og gera allt sem í valdi hans stendur til að stöðva hvalveiðar við Ísland. 28. mars 2023 11:54