Skoðun

Fyrrum olíuforstjóri veitir ómetanlega innsýn inn í heim spillingar og óheilbrigðra viðskiptahátta

Jón Ingi Hákonarson skrifar

Hlustaði á áhugavert viðtal við fyrrum forstjóra olíufélags sem sagði farir sínar ekki sléttar þegar spilaborgin hrundi 2008. Í stuttu máli hneykslaðist hann á framgöngu Norðmanna vegna afgreiðslu olíufarms sem félagið hafði pantað frá norska ríkisolíufyrirtækinu Statoil. Hvorki viðskiptabanki fyrirtækisins, Statoil né norska ríkið vildi lána fyrirtækinu 23 milljónir dollara. Það endaði með því að þáverandi Seðlabankastjóri greiddi umrædda upphæð og olíufarmurinn var afgreiddur. Síðan þá hefur hann, að sögn, ekki getað litið Norðmenn sömu augum.

Mér hefur alltaf fundist áhugaverðara það sem fólk kýs ekki að segja, frekar en að hlusta á það sem það kýs að segja. Hvað er það sem hann kýs að halda utan við frásögn sína?

Hann kýs að halda því utan við frásögnina að hér voru fleiri olíufélög sem gátu afgreitt olíufarma í samstarfi við sína viðskiptabanka og viðskiptafélaga. Ekki þurfti aðkomu Seðlabankastjóra í þeim tilvikum.

Hann kýs að halda því utan við frásögn sína að fyrirtækið sem hann veitti forstöðu var í raun ógjaldfært á þessum tíma og fór seinna í nauðarsamninga þar sem kröfuhafar töpuðu milljörðum. Það hefði líklega þýtt að Statoil hefði þurft að afskrifa stóran hluta viðskiptakrafna sinna á félagið. Er ekki líklegt að vel rekið fyrirtæki eins og Statoil hafi haft það til hliðsjónar við ákvörðun sína?

Hann kýs að halda því utan við frásögnina að Seðlabankanum er einungis ætlað að vera í viðskiptum við viðskiptabanka en ekki fyrirtæki og einstaklinga. Það eitt og sér, að Seðlabankastjóri hlaupi undir bagga með ógjaldfæru fyrirtæki í samkeppnisrekstri vegna vináttu og kunningskapar við forstjóra og stjórnarformann félagsins hafi í raun og veru verið sýningargluggi inn í þá miklu spillingu og frændhygli sem einkennir þetta samfélag okkar.

Það sem ég heyrði í þessu viðtali var frásögn af því þegar óheilbrigðir viðskiptahættir, frændhygli og spilling mætti eðlilegum og varfærnum viðskiptaháttum. Það að Norðmenn hafi ekki viljað treysta ógjaldfæru fyrirtæki fyrir 23 milljónum dollara eru eðlilegir viðskiptahættir. Það að Seðlabankastjóri greiði fyrir olíufarm er það ekki.

Ég er þakklátur olíuforstjóranum fyrrverandi fyrir að leyfa okkur að sjá frá fyrstu hendi hvernig kaupin gerast á eyrinni, hvernig heilbrigðir viðskiptahættir eru í raun fjarri Íslandsströndum. Hér sést hvar valdið liggur. Þegar öllu er á botninn hvolft liggur valdið hjá þeim sem hafa aðgang að gjaldeyri.

Höfundur er oddviti Viðreisnar í bæjarstjórn Hafnarfjarðar




Skoðun

Skoðun

Þorpið

Alina Vilhjálmsdóttir skrifar

Sjá meira


×