Sæbýli klárar 400 milljóna útboð og áformar frekari vöxt
![Sæbýli hefur einbeitt sér að því að byggja upp eldisstofn með klakstofn frá Japan, sem er dýrasta afbrigði sæeyrna í heiminum.](https://www.visir.is/i/7E59B59C8719FC9C6E4DEB8D7D06A571E7A8C7DD4FCFC0D2BA4506ABF952818D_713x0.jpg)
Fyrirtækið Sæbýli, sem ræktar sæeyru á Suðurnesjum, hefur sótt sér 400 milljónir króna eftir að hafa lokið við hlutafjárútboð sem var beint að innlendum fjárfestum. Stjórnarformaður Sæbýlis, sem er að stórum hluta í eigu Eyris, segir að næsta skref verði að færa félagið frá því að vera í frumkvöðlastarfsemi yfir í að vera „mjög arðsöm eining“ í matvælaframleiðslu.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/9894E6655A1670B947F40BC6937ED1EAD6D53C4D9CA0F43C241F41BC3C68BA5A_308x200.jpg)
Tvö hundruð tonna sæeyrnaeldi í Grindavík
HS Orka og Sæbýli undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um sæeyrnaeldi í Auðlindagarði HS Orku. Gert er ráð fyrir byggingu á tvö hundruð tonna eldi sem mögulegt er að fimmfalda á næstu tíu árum.