Fótbolti

Ís­land byrjar á leik við lang­dýrasta mann EM

Sindri Sverrisson skrifar
Iván Fresneda er eftirsóttur hjá stórliðum í Evrópu en hann er í spænska hópnum sem mætir Íslandi í kvöld
Iván Fresneda er eftirsóttur hjá stórliðum í Evrópu en hann er í spænska hópnum sem mætir Íslandi í kvöld Getty/Seb Daly

Íslenska U19-landsliðið í fótbolta karla hefur í dag keppni á sjálfu Evrópumótinu sem fram fer á Möltu. Andstæðingarnir í fyrsta leik eru ógnarsterkt lið Spánverja.

Í spænska liðinu eru tveir verðmætustu leikmenn mótsins samkvæmt vefsíðunni Transfermarkt, sem sérhæfir sig í að verðmeta knattspyrnumenn.

Leikmennirnir á mótinu eru að sjálfsögðu ungir og ekki komið í ljós hve góðir þeir geta orðið, en einn maður sker sig verulega úr samkvæmt verðmati Transfermarkt. 

Það er spænski bakvörðurinn Iván Fresneda, leikmaður Valladolid, sem sterklega hefur verið orðaður við Arsenal síðustu mánuði en er núna einnig sagður í sigti Barcelona. 

Eftir fall Valladolid úr efstu deild er Fresneda, samkvæmt ákvæði í samningi, falur fyrir 20 milljónir evra. Samkvæmt Transfermarkt er hann metinn á 15 milljónir evra, jafnvirði 2,2 milljarða króna.

Spánverjar eiga einnig næstdýrasta leikmann EM, samkvæmt Transfermarkt, en það er kantmaðurinn Ilias Akhomach sem er á mála hjá Barcelona. Hann er metinn á þrjár milljónir evra, rétt eins og Portúgalinn Rodrigo Ribeiro.

„Spánverjar eru auðvitað einna sigurstranglegastir á þessu móti. Sóknarlega og varnarlega, og þegar þeir vinna boltann, eru þeir einstakir,“ sagði Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari U19-landsliðsins, á vef UEFA.

Eggert Aron Guðmundsson í stuði í myndatöku UEFA fyrir mótið.Getty/Seb Daly

Eggert Aron sá dýrasti eftir forföllin

Eggert Aron Guðmundsson, leikmaður Stjörnunnar, er verðmætastur í íslenska hópnum samkvæmt Transfermarkt en hann er metinn á 150 þúsund evrur, jafnvirði 22 milljóna króna, eða 1/100 af því verði sem sett er á Fresneda. Eggert er í 62.-68. sæti yfir dýrustu leikmenn mótsins hjá Transfermarkt.

Ísland er án sinna bestu leikmanna því þeir Kristian Nökkvi Hlynsson úr Ajax, Orri Steinn Óskarsson úr FC Kaupmannahöfn og Daníel Tristan Guðjohnsen úr Malmö fengu ekki leyfi hjá sínum félögum til að fara á mótið. Hilmir Rafn Mikaelsson úr Tromsö missir einnig af mótinu vegna meiðsla.

Séu þessir taldir með er Kristian með hæsta verðmiðann á sér en hann er metinn á 750.000 evrur hjá Transfermarkt, jafnvirði um 111 milljóna króna.

Leikur Íslands og Spánar hefst klukkan 19.15 og verður í beinni textalýsingu hér á Vísi líkt og aðrir leikir U19-landsliðsins á EM.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×