Enski boltinn

Tielemans kominn með nýtt lið í úr­vals­deildinni

Smári Jökull Jónsson skrifar
Tielemans er genginn til liðs við Aston Villa.
Tielemans er genginn til liðs við Aston Villa. Vísir/Getty

Youri Tielemans er genginn til liðs við Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni en greint var frá félagaskiptunum í dag. Hann kemur til liðs við Villa frá Leicester

Leicester City féll úr ensku úrvalsdeildinni í vor og síðan þá hafa bestu leikmenn liðsins flestir verið orðaðir við brottför frá félaginu. James Maddison gekk til liðs við Tottenham á dögunum og nú hefur Belginn Youri Tielemans einnig yfirgefið Leicester.

Aston Villa greindi frá því í morgun að Tielemans væri nýjasti liðsmaður félagsins en hann kemur á frjálsri sölu eftir að samningur hans hjá Leicester rann út. 

Tielemans er landsliðsmaður Belgíu en hann hefur leikið 60 landsleiki fyrir þjóð sína og á að baki rúmlega 150 leiki fyrir Leicester.

Aston Villa tryggði sér sæti í Evrópukeppni á næstu leiktíð eftir fína frammistöðu á nýliðnu tímabili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×