Lífið

Vopna­vörðurinn sagður hafa verið með kókaín á setti

Árni Sæberg skrifar
Halyna Hutchins var 42 ára gömul þegar hún lést af voðaskoti á tökustað kvikmyndarinnar Rust árið 2021. Hún lét eftir sig eiginmann og son á barnsaldri.
Halyna Hutchins var 42 ára gömul þegar hún lést af voðaskoti á tökustað kvikmyndarinnar Rust árið 2021. Hún lét eftir sig eiginmann og son á barnsaldri. Getty

Saksóknarar í máli Hönnuh Gutierrez-Reed, sem ákærð hefur verið fyrir manndráp af gáleysi í tengslum við andlát kvikmyndatökumannsins Halynu Hutchins á tökustað kvikmyndarinnar Rust, segja hana hafa afhent ónefndu vitni lítinn poka af kókaíni daginn sem Hutchins lést.

Þetta segja saksóknarar hana hafa gert í þeim tilgangi að koma í veg fyrir að laganna verðir kæmust yfir sönnunargögn, sem myndu benda til sektar hennar. Fyrir dómi í dag fóru þeir fram á að vitnið mætti koma fram nafnlaust, enda óttist það ella útskúfun úr kvikmyndabransanum.

Hannah Gutierrez-Reed var vopnavörður á setti kvikmyndarinnar, sem stórleikarinn Alec Baldwin fer með aðalhlutverkið í. Líkt og ítarlega hefur verið fjallað um leyndist byssukúla en ekki púðurskot í byssu sem leikarinn miðaði að Hutchins, með þeim afleiðingum að hún lést.

Áður hefur verið greint frá því að Gutierrez-Reed hafi að öllum líkindum verið timbruð, þegar hún hlóð skotvopnið.

Hún hefur verið ákærð fyrir manndráp af gáleysi og í síðustu viku bættu saksóknarar við ákæru fyrir að eyðileggja sönnunargögn, með því að losa sig við kókaínið. Jason Bowles, verjandi hennar, segir hana munu neita sök í báðum ákæruliðum.

Í samtali við Reuters segir hann að nýju ákæruna skorti bæði staðfestingu og öll sönnunargögn.

„Líkt og með allt annað í málatilbúnaði og rannsókn ríkisins, vekur þetta hörð viðbrögð en skortir alla þýðingu,“ er haft eftir honum.


Tengdar fréttir

Saksóknarinn í málinu gegn Baldwin segir af sér

Saksóknari sem haldið hefur utan um rannsókn yfirvalda í Nýju Mexíkó á dauða Haylynu Hutchins, sem leikarinn Alec Baldwin skaut til bana við tökur myndarinnar Rust, hefur sagt af sér. Það er eftir að lögmenn Baldwins héldu því fram að skipun hennar í embætti sérstaks saksóknara færi gegn stjórnarskrá ríkisins, þar sem Andrea Reeb, umræddur saksóknari, sæti einnig á þingi Nýju Mexíkó.

Vopna­vörðurinn segir ein­hvern hafa sett skot í byssuna

Vopnavörður kvikmyndarinnar Rust segir mögulegt að einhver hafi sett hefðbundið byssuskot í byssu sem notuð var við æfingar fyrir tökur. Leikarinn Alec Baldwin skaut kvikmyndatökustjórann Halynu Hutchins til bana með byssunni.

Telja hefðbundna kúlu hafa verið í byssunni

Fógeti Santa Fe-sýslu í Nýju Mexíkó og héraðssaksóknari sýslunnar héldu í dag blaðamannafund um rannsókn þeirra á dauða Halynu Hutchins, kvikmyndatökustjóra, sem dó við gerð kvikmyndarinnar Rust. Þar kom í ljós að talið er að hefðbundið byssuskot hefði verið í byssunni sem leikarinn Alec Baldwin skaut Hutchins með.

„Einhver ber ábyrgð en ég veit það er ekki ég“

„Einhver ber ábyrgð á því sem gerðist, ég veit ekki hver það er en ég veit það er ekki ég.“ Þetta sagði leikarinn Alec Baldwin í fyrsta viðtali sínu eftir að skaut hljóp úr byssu sem hann hélt á við tökur á kvikmyndinni Rust.

Baldwin verður ákærður fyrir manndráp af gáleysi

Leikarinn Alec Baldwin verður ákærður fyrir manndráp af gáleysi eftir að hann skaut kvikmyndatökustjórann Halynu Hutchins til bana við tökur á kvikmyndinni Rust í Nýju Mexíkó í október 2021.

FBI segir Baldwin hafa tekið í gikkinn

Leikarinn Alec Baldwin, tók í gikk byssu á tökum kvikmyndarinnar Rust þegar Haylyna Hutchins, tökustjóri kvikmyndarinnar, fékk skot úr byssunni í bringuna og dó. Skotið hæfði einnig Joel Souza, leikstjóra en Baldwin hefur haldið því fram að hann hafi ekki tekið í gikkinn þegar skotið hljóp af.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.