Erlent

National Geo­grap­hic segir upp öllum fast­ráðnum blaða­mönnum

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Hér gefur að líta síðasta eintakið af NAtional Geographic sem  fastráðnir blaðamenn þess komu að áður en þeim var öllum sagt upp.
Hér gefur að líta síðasta eintakið af NAtional Geographic sem fastráðnir blaðamenn þess komu að áður en þeim var öllum sagt upp. AP/Jacquelyn Martin

Tímaritið National Geographic hefur sagt upp síðustu fastráðnu blaðamönnum ritstjórnar sinnar og verður ekki lengur selt í bandarískum blaðsöluturnum.

Að sögn Washington Post var nítján fastráðnum blaðamönnum National Geographic sagt upp. Tímaritið mun áfram koma út en eftirstandandi ritstjórar blaðsins munu sinna greinaskrifum ásamt blaðamönnum í lausamennsku.

 Þá verður sölu tímaritsins í blaðsöluturnum í Bandaríkjunum hætt en það mun vera hluti af sparnaðaraðgerðum Disney, sem á tímaritið. Áskrifendur muni enn fá eintak í pósti og einstaka útgáfur munu fara í sölu í verslunum. 

Fulltrúi National Geographic sagði ákvörðunina vera þátt í að leggja meiri áherslu á stafræna útgáfu en sala í blaðsöluturnum er aðeins lítill hluti af mánaðarlegri sölu tímaritsins sem er 1,8 milljónir eintaka.

„National Geographic mun halda áfram að gefa út mánaðarrit sem er helgað framúrskarandi frásögnum sem hafa menningarleg áhrif á mörgum vettvöngum. Mönnunarmál munu ekki hafa áhrif á hæfni okkar til að sinna þessari vinnu, heldur gefa okkur sveigjanleika til að segja öðruvísi sögur og mæta lesendahópi okkar hvar sem þeir eru á okkar mörgu vettvöngum. Hvers konar dylgjur um það að nýjustu breytingar hafi neikvæð áhrif á tímaritið, eða gæði frásagna okkar, eru einfaldlega rangar,” sagði í yfirlýsingu tímaritsins vegna fréttanna.

Erfiðir tímar hjá fjölmiðlum

Fréttirnar berast í kjölfar mikilla vandræða fjölmiðla og fjöldauppsagna í fjölmiðlaheiminum á undanförnum mánuðum.

Íþróttamiðillinn ESPN sem er líka í eigu Disney greindi frá því í gær að rúmlega tuttugu íþróttafréttalýsendum yrði sagt upp í sparnaðaraðgerðum. Þeirra á meðal voru nokkur þekkt nöfn sem hafa sinnt körfuboltaumfjöllun á ESPN, þar á meðal Jeff van Gundy og Jalen Rose.

Vice Media sem störfuðu þvert á miðla lýstu yfir gjaldþroti í maí á þessu ári. Fjórum árum fyrr þurfti fyrirtækið að segja upp 250 manns.

Mánuði fyrr hætti Fréttablaðið útgáfu hér á landi. Það hafði gríðarleg áhrif á fjölda blaðamanna og annarra starfsmanna.

Í desember á síðasta ári sagði Buzzfeed upp um tólf prósent starfsmanna sinna, næstum tvö hundruð manns. Aðeins mánuði fyrr sagði CNN í Bandaríkjunum upp mörg hundruð starfsmönnum, aðeins hálfu ári eftir að hafa hætt við útgáfu streymisveitunnar CNN+ sem leiddi til uppsagna um 350 starfsmanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×