Veiði

110 sm hrygna veiddist í Blöndu

Karl Lúðvíksson skrifar
Gísli með 110 sm hrygnuna úr Blöndu
Gísli með 110 sm hrygnuna úr Blöndu

Blanda er vel þekkt fyrir stóra laxa og í gær veiddist einn af þeim og er enn sem komið stærsti laxinn sem veiðst hefur í sumar.

Laxinn sem um ræðir var 110 sm hrygna sem tók Svartan Frances og var flugunni kastað norðan meginn af Breiðunni sem er líklega einn þekktasti veiðistaður Blöndu.  Veiðimaðurinn var Gísli Vilhjálmsson og honum til aðstoðar var Þorsteinn Hafþórsson. Eins og meðfylgjandi mynd ber með sér er þetta þykk og flott hrygna sem hefur greinilega verið í ánni í einhvern tíma því ekki er hún nýgengin eins og sjá má á útliti hrygnunar. Þetta er glæsilegur lax og Veiðivísir óskar veiðimanni til lukku með fenginn.






×