Veiði

Arnarvatnsheiði er gefa flotta silunga

Karl Lúðvíksson skrifar
Ingólfur Kolbeinsson með flotta veiði af Arnarvatnsheiði um helgina
Ingólfur Kolbeinsson með flotta veiði af Arnarvatnsheiði um helgina

Arnarvatnsheiðin er mjög vinsæl hjá veiðimönnum sem kunna vel á hálendið enda eru vötnin gjöful og fiskurinn vænn.

Ingólfur Kolbeinsson, oftast bara kallaður Ingó í Vesturröst var við veiðar uppá Arnarvatnsheiði um helgina og gerði fína veiði. "Þetta var mjög flott veiði og gaman hvað hún dreifðist vel milli þeirra vatna sem við fórum í. Við vorum að fá bæði bleikju og urriða en þó aðeins meira af bleikju sem er frekar óvenjulegt á þessum tíma. Yfirleitt er urriðinn að veiðast mest svona í byrjun" sagði Ingólfur í samtali við Veiðivísi í morgun. "Bleikjan var að taka Pheasant Tail númer #10 og urriðinn mest að taka Gullbrá sem er nett straumfluga.  Það var líka gaman að sjá hvað fiskurinn er vel haldinn en uppistaðann í aflanum hjá okkur var mjög flottur 2-3 punda silungur" sagði Ingólfur að lokum.

Veiðivötnin fara að opna og hálendið er annars víða komið í gang og þar má til dæmis nefna svæðin sem Fish Partner eru með en nokkrir úr þeirra hóp gerðu flotta veiði í Fellsendavatni um helgina.






×