Innlent

Bensín­stöðin sem ferða­menn míga við verður færð

Kristinn Haukur Guðnason skrifar
Bensínstöðin umdeilda verður flutt. Íbúarnir kvarta yfir hlandlykt og óþrifnaði.
Bensínstöðin umdeilda verður flutt. Íbúarnir kvarta yfir hlandlykt og óþrifnaði. Skjáskot/Google Maps

Sveitarfélagið Múlaþings hefur ákveðið að færa bensínstöð N1 á Djúpavogi út fyrir íbúabyggðina. Ferðamenn kasta af sér vatni við stöðina íbúum til ama og fyrirtækin á svæðinu vilja ekki kosta salernisaðstöðu.

Á mánudag samþykkti umhverfis og framkvæmdaráð Múlaþings tillögu heimastjórnar Djúpavogs að færa stöðina. Var hún samþykkt samhljóða í ráðinu.

„Forsendur fyrir staðsetningu á eldsneytisdælum á Djúpavogi hafa gjörbreyst samhliða stóraukinni umferð í tengslum við ferðaþjónustu og þungaflutninga. Hvort tveggja hefur neikvæð áhrif á lífsgæði íbúa og ásýnd svæðisins,“ segir í tillögunni. Verði þegar hafist við að breyta gildandi aðalskipulagi með það fyrir augum að bensínstöðinni verði fundinn staður fjær íbúabyggð.

Íbúar við fimm hús í Djúpavogi, við göturnar Búland og Steina, höfðu farið fram á að starfsleyfi bensínstöðvarinnar yrði fellt úr gildi. Því erindi vísað umhverfis og framkvæmdaráð til Heilbrigðiseftirlits Austurlands.

Fyrirtæki vildu ekki setja upp klósett

Eins og kom fram í frétt Vísis frá því í maí síðastliðnum eru íbúar afar ósáttir við óþrifnað og hlandlykt sem fylgir bensínstöðinni, sem er sjálfsafgreiðslustöð. Hún stendur við helsta verslunarkjarna þorpsins þar sem Samkaup, Landsbankinn, ÁTVR og Íslandspóstur eru með aðstöðu.

Heimastjórn óskaði eftir að þessi fyrirtæki tækju sig saman og settu upp salernisaðstöðu. Sveitarfélagið gæti ekki sjálft gert það á einkalóð. Enginn vilji reyndist hins vegar vera fyrir því hjá fyrirtækjunum. Báru sum þeirra það fyrir sig að þau væru aðeins leigjendur en ekki eigendur hússins.

Myndavélar dugðu ekki til

Mál bensínstöðvarinnar hefur verið til umræðu hjá sveitarstjórn í meira en ár. En stöðin var á sínum tíma byggð án grenndarkynningar eða samráðs við íbúa í nágrenninu.

„Það er búið að reyna að gera allt. Það er búið að girða og setja upp myndavélar. Fólki er nákvæmlega sama því það veit að það er enginn sem situr við skjáinn og starir á það,“ sagði Oddný Anna Björnsdóttir, fulltrúi í heimastjórn Djúpavogs í Múlaþingi við Vísi í maí. Ferðamenn búist við að finna salerni við bensínstöðina en þegar henni væri ekki til að dreifa gera þeir þarfir sínar undir berum himni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×