Körfubolti

Breiða­blik nælir í þjálfara kvenna­liðsins og leik­mann karla­liðsins í einum pakka

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Guillermo Sánchez mun þjálfa kvennalið Breiðabliks í Subway-deildinni á næsta tímabili ásamt því að leika með karlaliðinu.
Guillermo Sánchez mun þjálfa kvennalið Breiðabliks í Subway-deildinni á næsta tímabili ásamt því að leika með karlaliðinu. Breiðablik

Körfuknattleiksdeild Breiðabliks hefur samið við Guillermo Sánchez um að þjálfa kvennalið félagsins í Suway-deildinni í körfubolta á komandi tímabili. Hann mun einnig leik með karlaliðinu.

Sánchez kemur til Breiðabliks frá Sindra þar sem hann var spilandi aðstoðarþjálfari á síðasta tímabili, ásamt því að þjálfa yngri flokka þar.

Það verður því nóg að gera hjá Sánchez á komandi tímabili því ásamt því að ætla að þjálfa kvennaliðið og spila með karlaliðinu mun hann þjálfa yngri flokka Breiðabliks í vetur.

Að því er fram kemur í tilkynningu Breiðabliks hefur Sánchez góða reynslu af þjálfun. Hann þjálfaði í Austurríki í fimm ár og var á þeim tíma þjálfari meistaraflokks kvenna í næstefstu deild.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×