Erlent

Páfi laus af sjúkrahúsi eftir skurðaðgerð

Kjartan Kjartansson skrifar
Létt virtist yfir Frans páfa þegar hann yfirgaf Agostino Gemelli-sjúkrahúsið í Róm í morgun. Aðdáendur hans söfnuðust saman við útganginn og fréttamenn kepptust við að reyna að ná tali af honum.
Létt virtist yfir Frans páfa þegar hann yfirgaf Agostino Gemelli-sjúkrahúsið í Róm í morgun. Aðdáendur hans söfnuðust saman við útganginn og fréttamenn kepptust við að reyna að ná tali af honum. AP/Andrew Medichini

Frans páfi var útskrifaður af sjúkrahúsi í Róm þar sem hann gekkst undir aðgerð vegna kviðslits í dag. Skurðlæknir páfa segir að hann sé nú betri en hann var fyrir aðgerðina.

Páfi, sem er 86 ára gamall, dvaldi á sjúkrastofu sem er eingöngu notuð fyrir páfa kaþólsku kirkjunnar á Gemelli-sjúkrahúsinu í níu daga. Honum var trillað út af því í hjólastól brosandi og veifandi til fólks sem hafði safnast saman við útganginn í morgun.

AP-fréttastofan segir að engin vandamál hafi komið upp í aðgerðinni. Sergio Alfieri, skurlæknirinn sem skar páfa upp, segir að hann verði „sterkur páfi“.

Frans hafði verið þjakaður af sársauka vegna örmyndana eftir fyrri kviðarholsaðgerða. Hætta var á að hann gæti lent í þarmateppu ef örvefurinn væri ekki fjarlægður.

Öllum áheyrnum páfa í júní til og með 18. júní var frestað vegna aðgerðarinnar. Búist er við því að hann fundi með forsetum Kúbu og Brasilíu strax í næstu viku. Í ágúst stendur til að Frans fari í pílagrímsferð til Portúgals og síðan fyrstu ferð kaþólsks páfa til Mongólíu.


Tengdar fréttir

Páfi á leið í skurðaðgerð

Frans páfi gengst undir skurðaðgerð vegna þarmateppu í dag. Páfagarður segir að páfi, sem er 86 ára gamall, verði svæfður fyrir aðgerðina og verði haldið á sjúkrahúsi í Róm í nokkra daga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×