Körfubolti

Fær James Hard­en ofur­samning hjá Hou­ston Rockets?

Siggeir Ævarsson skrifar
Harden vill sækja salt í grautinn
Harden vill sækja salt í grautinn Scott Taetsch/Getty Images

Sú saga hefur flogið fjöllum hærra allt frá því í vor að James Harden, leikmaður Philadelphia 76ers í NBA deildinni, muni snúa aftur til Houston Rockets næsta vetur. Til þess þurfa þó mörg púsl að lenda á réttum stöðum, þá sérstaklega þau sem snúa að launum.

Harden ákvað í maí að nýta ekki svokallað „player option“ í samningi sínum við 76ers, sem hefði framlengt samning hans um eitt ár og tryggt honum 35.640.000 dollara í árslaun. Þess í stað reikna flestir með að Harden vilji skrifa undir „supermax“ samning, sem myndi tryggja honum hæstu mögulegu launin í NBA deildinni.

En hvaða lið eru tilbúin að skrifa undir fimm ára ofursamning við 37 ára leikmann, sem virðist vera kominn af léttasta skeiði og hefur aldrei náð að leiða lið sitt alla leið, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir? Houston Rockets, þar sem Harden lék rúm átta tímabil og var aðeins hársbreidd frá því að koma liðinu í úrslit, virðast vera nokkuð spenntir fyrir endurkomu hans.

En það er að mörgu að hyggja hjá Rockets. Síðan að Harden yfirgaf liðið, ekki beinlínis í góðu, hefur það verið í uppbyggingarfasa og treyst á táninga og minni spámenn, og árangurinn verið eftir því. Nú er því mögulega spurning um að hrökkva eða stökkva fyrir Rockets.

Reiknað er með að launaþakið í NBA verið 134 milljónir næsta tímabil, og Rockets eru með um 57 milljónir á sínum bókum, það allra lægsta í deildinni líkt og Detroit Pistons. Ef Harden fær ofursamning, myndi hann fá um 47 milljónir í árslaun, og í raun éta upp megnið af launaþaki félagsins.

Skiptar skoðanir eru á því hversu skynsamlegt það væri fyrir Rockets að fá Harden aftur á þessum tímapunkti. Liðið inniheldur ungan og efnilegan kjarna, og þarf klárlega á því að halda að fá reynslumeiri leikmenn til liðsins til að leiðbeina og þroska hópinn.

Hvort James Harden er rétti maðurinn í það hlutverk skal ósagt látið. Nú þegar úrslitakeppnin er að baki má búast við að leikmannamarkaðurinn í NBA fari á fullt og mun nafn James Harden án vafa verða áberandi í fréttum af honum.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×