Skoðun

Til bjargar hita­veitum landsins

Sveinn Áki Sverrisson skrifar

Orkumálaráðherra Guðlaugur Þór Þórðarson á hrós skilið fyrir að kalla eftir ástandsskýrslu fyrir hitaveitur landsins. Við lestur skýrslu er það ljóst að staðan er alvarleg. Ég bý í Hafnarfirði og Veitur er mitt veitufyrirtæki. Veitan er sjálfbær en eftirspurn er mikil og ágeng. Ég hef áhyggjur af þessu. Eftir að hafa unnið við orkumál bygginga í 40 ár fór ég að hugsa hvað væri hægt að gera. Ég fann það sem Samorka og hitaveitufólk er að boða:

  • hita húsin með gólfhita til að spara orku
  • minnka pottaferðir
  • fara í sturtu í stað þess að fara í bað
  • hætta að hita gangstéttar á sumrin
  • menn kvarta undan að bætt einangrun húsa hafi ekki skilað neinu
  • tæknivæðing hafi ekki dregið úr notkun
  • fleiri fermetrar á bakvið hvern íbúa

Ég held að það liggi ekki mikil rannsóknarvinna til grundvallar þessum tillögum frá Samorku. Eru hús með baðkari eða pottum með hærra rennsli. Hverjir eru að hita gangstéttar á sumrin?

Breytingar á einangrun húsa hefur ekki verið að neinu marki síðan 1984 og eru þær löngu komnar fram. Eina breyting sem gerð hefur verið á kerfum er lækkun á heita neysluvatnsins í nýbyggingum með því að setja upp varmaskipti. Það var árið 2007. Tæknivæðing liggur mest í stjórnun gólfhita.

Áður en við byrjum að breyta hönnun og atferli fólksins sem er alltaf erfitt þá skulum við líta til baka.

Áður en hitakerfi er afhent EIGANDA til reksturs þarf að ljúka verkinu með jafnvægisstillingu. Ef þessum verkþætti er sleppt þá vinnur kerfið ekki með hámars nýtni, ofnlokar eru ekki að vinna á besta vinnslusviði. Suð í ofnum og bakrás skilar frekar heitu vatni til baka. Kerfið notar >15% meiri orku (vatn). Þarna er komið verkfæri til að auka afköst dreifikerfis hitaveitu.

Ég get fullyrt það að í öll þessi ár sem ég starfaði við lagnahönnun þá get ég talið á fingrum annarrar handar þá pípulagnameistara sem kunnu og gengi í það að jafnvægisstilla hitakerfi. Í Evrópu er sama vandamál að koma upp (markaðs brestur). 80% hitakerfa í Þýskalandi hafa ekki verið jafnvægisstillt.

Hugsum okkur að við jafnvægistillum hitakerfi í opinberri stofnun sem er t.d. 10.000m2. Það gefur 3.300 m3 í aðra hönd fyrir ríkið og kannski minnkum við rennslistopp um 0,3l/s sem er 50kW eða 4-5 einbýlishús. Ef við jafnvægisstillum 5-6 einbýli þá gefum við pláss fyrir eitt einbýlishús.

Það verður spennandi að sjá hvernig landið liggur þegar Veitur hafa tengt alla snjallmæla við eftirlitshugbúnað. Þá geta Veitur séð hvar hitakerfi hafa slaka nýtingu og látið húseiganda vita og boðið honum 5% afslátt af næstu 6 reikningum ef hann fær fagmann til að JAFNVÆGISSTILLA HITAKERFIÐ.

Prófið að skrúfa hitanemann á ofnlokunum (Danfoss ofnlokum) af. Ef ofninn sjóðhitnar alveg niður, þá hefur píparinn ekki klárað verkið og þú er að borga of háan hitareikning.

Byrjum á réttum enda – spyrjum píparann um stilliskýrslu fyrir jafnvægisstillingu!

Höfundur er véltæknifræðingur. 




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×