Lífið

Svona endast karl­menn lengur í rúminu

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Um 40 prósent karlmanna á öllum aldri glíma við ótímabært sáðlát.
Um 40 prósent karlmanna á öllum aldri glíma við ótímabært sáðlát. Getty

Ótímabært sáðlát (e. Premature ejaculation) gerist innan við sextíu sekúndum eftir að samfarir hefjast, eða áður en þú eða maki þinn eruð tilbúin að ljúka athöfninni. Um 40 prósent karlmanna á öllum aldri glíma við vandann.

Breski kynlífssérfræðingurinn og rithöfundurinn Tracey Cox birti lista á vefsíðu sinni með ráðum hvernig karlmenn geta enst lengur í rúminu án þess að fá sáðlát. 

„Af öllum þeim spurningum sem ég fæ frá karlmönnum er þessi ávallt efst á listanum,“ segir Cox og bendir á að margir karlmenn eiga það til ofmeta það sem flokkast sem ótímabært sáðlát. 

„Sannleikurinn er sá að meðalmaðurinn endist í um tvær til fimm mínútur.“

Cox spurði hóp karlmanna hversu lengir þeir töldu aðrir menn endast í rúminu, flestir sögðu á bilinu tíu til sextíu mínútur. 

Hér að neðan má finna ráð sem geta hjálpað karlmönnum að endast lengur í rúminu.

Ekki trúa öllu sem þú heyrir 

„Að endast lengur gerir þig ekki að betri elskhuga, sérstaklega ef þú ert að sofa hjá konu, þar sem flestar konur fá fullnægingu við örvun á sníp.“

Talið er aðeins um átján prósent kvenna fái fullnægingu í gegnum leggöng. 

„Ljúktu þér hratt af og gefðu henni svo unaðslega fullnægingu með munnmökum eða handafimi.“

Talið er aðeins 18 prósent kvenna fái fullnægingu í gegnum leggöng.Getty

Heilbrigt líferni samsvarar heilbrigðu typpi

Með heilbrigðu líferni eykur þú heilbrigði typpisins að sögn Cox. Hún ráðleggur karlmönnum að borða hollt, hreyfa sig og huga að andlegri heilsu. Þá sé mikilvægt að hætta að reykja og hafa neyslu áfengis í hófi.

Heilsusamlegt líferni getur stuðlað að heilbrigðu typpi.Getty

Stundaðu sjálfsfróun fyrir samfarir

Til að endast sem lengst í rúminu væri sjálfsfróun fyrir samfarir góð hugmynd, sérstaklega ef þú hefur ekki stundað kynlíf í lengri tíma. 

Sjálfsfróun fyrir samfarir getur hjálpað til við að endast lengur.Getty

Notaðu smokk

Með notkun smokks verður næmni typpisins minni og getur því hjálpað til við að endast lengur í samförum.

Smokkurinn getur dregið úr næmni typpisins.Getty

Krem sem deyfir og seinkar

Ef smokkurinn virkar ekki getur verið ráð að prófa sig áfram með svokallað seinkunar-krem (e. delay cream). Kremið hefur þau áhrif að deyfa typpið sem dregur úr næmni og seinkar sáðláti, án þess þó að hafa áhrif á stinningu typpisins.

„Prófaðu kremið fyrst í sjálfsfróun áður en þú stundar kynlíf en hafðu í huga að kremið getur einnig haft deyfandi áhrif á makann.“

Krem getur hjálpað til við að seinka sáðláti.Getty

Breyttu aðferðinni við sjálfsfróun

Fjölbreytt aðferð í sjálfsfróun getur endurforritað typpið, ef svo má að orði komast, og lengt tímann að sáðláti. 

„Ef það tekur þig aðeins nokkrar sekúndur eða mínútur að fá fullnægingu við sjálfsfróun ertu búinn að forrita typpið við þann tíma. Með breyttri tækni og örvun á önnur svæði typpisins getur þú lengt tímann  sem þú endist.“

Slík forritun á það til að tengjast sjálfsfróun á yngri árum sem þurfti að klára hratt og örugglega svo enginn myndi labba óvart inn til manns. Umræðan um sjálfsfróun hefur oft og tíðum verið neikvæð og getur ýtt undir skömm og sektarkennd.

Getty

Styrktu grindarbotnsvöðvana

Reglulegar grindarbotnsæfingar geta bætt ristruflun um 75 prósent hjá karlmönnum en hjálpar einnig til við að hafa betri stjórn á sáðláti. Æfingarnar hafa oft verið kenndar við konur sem hafa verið hvattar til að æfa grindarbotninn eftir barnsburð. 

 „Æfðu þig að stoppa pissubununa sem sýnir bæði hvort þú kunnir að spenna grindarbotninn og hvort hann sé nógu sterkur. Önnur leið er að reyna að lyfta eistunum án þess að nota hendur.“

Sterkir grindabotnsvöðvar eru allra meina bót fyrir typpið.Getty

Stundaðu kynlíf oftar

Því oftar sem þú stundað kynlíf því meiri stjórn hefur þú á fullnægingunni að sögn Cox: „Það er eðlilegt að geta ekki haft stjórn á sér ef þú hefur ekki stundað kynlíf í lengri tíma. Þó svo að þú eigir ekki maka hjálpar sjálfsfróun líka til að endast lengur í rúminu.“

Meira kynlíf meira þol.Getty

Slepptu uppáhaldskynlífsstellingunni

Ákveðnar kynlífsstellingar geta ýtt undir meiri spennu og aukna örvun hjá karlmönnum. Til þess að endast sem lengst er ráðlagt velja þá stellingu sem krefst meiri einbeitingar og veitir minni örvun.

„Ráðlagt er að sleppa því að stunda kynlíf í trúboðastellingunni og hundastellingunni (e. doggy-style).“

Sumar kynlífsstellingar hafa meiri örvandi áhrif en aðrar.Getty

Tengdar fréttir

Kennslu­mynd­band í að finna G-blettinn vand­fundna

Fullnæging kvenna í gegnum leggöng getur reynst mörgum erfið og er talið að aðeins átján prósent kvenna fái fullnægingu á þann veg, án annarrar örvunar líkt og á sníp eða með kynlífstækjum.

Mælir með að geyma snípinn þar til síðast

Æfingin skapar meistarann er setning sem flestir kannast við og á hún ekki síður við í kynlífi en öðru, hvað þá í munnmökum. Ítarlegar leiðbeiningar um píkuunað sem ættu að geta gagnast kynlífsiðkendum eru aðgengilegar á samfélagsmiðlum kynlífstækjaverslunarinnar Losta. 

Mis­munandi leiðir til að stunda kyn­líf án sam­fara

Elskendur eiga það til að festast í sömu rútínunni í kynlífi eins og svo mörgu öðru í lífinu. Kynlíf getur verið leikur og skemmtun án þess að snúast eingöngu um samfarir eða innsetningu typpis eða leikfanga í leggöng eða rass.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.