Lífið

Hreinn Garðar hjá Hreinum görðum hreinsar óhreina garða

Helena Rós Sturludóttir skrifar
Hreinn Garðar fékk nýlega sumarstarf hjá fyrirtækinu Hreinir garðar.
Hreinn Garðar fékk nýlega sumarstarf hjá fyrirtækinu Hreinir garðar. Arnar Halldórsson

Hinn átján ára gamli Hreinn Garðar Friðfinnsson sem hóf nýlega störf hjá fyrirtækinu Hreinir garðar segir söguna um ráðningu sína frekar skondna. Eigandi fyrirtækisins sér fyrir sér mögulegt forstjóraefni framtíðarinnar. 

„Ég var dauðþreyttur í rúminu og svaraði ég er bara einhver unglingur í Reykjavík. Á ég að fara taka niður jólaseríuna þína? Hún biður um að fá að tala við einhvern fullorðinn. Þá fattaði ég misskilninginn, ég heiti Hreinn Garðar sagði ég og þú ert að meina fyrirtækið Hreinir garðar og hún hló og hló og hló,“ segir Hreinn Garðar kíminn en K100 greindi fyrst frá. 

Það hafi verið í fjórða skipti sem hann fékk símtal sem tilheyrði fyrirtækinu. Hreinn Garðar sá svo auglýsingu þar sem Hreinir garðar voru að auglýsa eftir sumarstarfsfólki og þá hafi hann ákveðið að notfæra sér nafnið og hringt beint.

Sá sem svaraði hafi verið nývaknaður. „Af hverju viltu vinna hérna? Ég sagði ég heiti Hreinn Garðar og það er frekar steikt. Gaurinn vaknaði, hann var steinsofandi og bara ert þú Hreinn Garðar. Þú verður að vinna hér, nafnið er algjör innspýting,“ segir hann. 

Hreinn Garðar er alsæll í nýja starfinu. Arnar Halldórsson

Viku síðar fékk Hreinn Garðar vinnuna og er hann að eigin sögn alsæll. Það sama má segja um eiganda fyrirtækisins. „Við erum náttúrulega mjög ánægð með þetta. Þetta var eiginlega of fyndið til að gera þetta ekki,“ segir Þorgrímur Haraldsson, eigandi fyrirtækisins Hreinir garðar ehf. 

„Ég sé nú eiginlega bara fyrir mér að hann verði að gerast forstjóri fyrirtækisins í framtíðinni þannig ég reikna með að hann verði allavega út sumarið. Vonandi bara að eilífu“

Hreinn Garðar segist aðspurður skilja við garðana mjög hreina. „Ég myndi alveg segja það. Hreinn skilur ekki óhreina garða eftir,“ segir hann og hlær. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.