Miami skrúfaði frá hitanum í fjórða leikhluta og jafnaði Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. júní 2023 07:31 Bam Adebayo treður í öðrum úrslitaleik Miami Heat og Denver Nuggets. getty/Mark J. Terrill Miami Heat jafnaði metin í úrslitaeinvígi NBA-deildarinnar í körfubolta með þriggja stiga sigri á Denver Nuggets í nótt, 108-111.
Það blés ekki byrlega fyrir Miami sem var mest fimmtán stigum undir og átta stigum undir þegar 4. leikhluti hófst. Þar hrukku leikmenn Miami í gang, sneru dæminu sér í vil og komust með tólf stigum yfir. Þeir voru hins vegar nálægt því að kasta því forskoti frá sér. Nikola Jokic, sem átti stórleik, minnkaði muninn í 108-111 og Jimmy Butler klikkaði svo á þriggja stiga skoti hinum megin. Denver gat því jafnað með þristi en skot Jamals Murray geigaði. Miami varð þar með fyrsta liðið í rúma tvo mánuði til vinna leik á heimavelli Denver. Gabe Vincent var stigahæstur í jöfnu liði Miami með 23 stig. Butler og Bam Adebayo skoruðu 21 stig hvor. Max Strus gerði fjórtán stig og Duncan Robinson tíu, öll í 4. leikhluta. Jokic héldu engin bönd hjá Denver en hann skoraði 41 stig og hitti úr sextán af 28 skotum sínum. Murray skoraði átján stig og gaf tíu stoðsendingar. Liðin mætast í þriðja sinn á heimavelli Miami aðfaranótt fimmtudags.
NBA Mest lesið Schumacher sást meðal fólks í fyrsta sinn í ellefu ár Formúla 1 Tók einn og hálfan tíma að finna ungu hjólreiðakonuna sem lést Sport Ekki ánægður með stöðu Hákons Rafns Fótbolti Margbrotnaði á andliti, gæti verið dofinn fyrir lífstíð en ætlar að spila áfram Sport Landsliðshópurinn: Sverrir kemur inn og Brynjólfur valinn Fótbolti Bann og sekt fyrir að kalla fjórða dómara „litla helvítis kuntu“ Enski boltinn Sakar leikmenn United um leti á æfingum Enski boltinn Leikmaður City handtekinn fyrir að stela síma Enski boltinn Ljónagryfjan kvödd: „Hérna var sagan skrifuð“ Körfubolti „Okkur fannst það skylda að klára með sigri“ Körfubolti Fleiri fréttir Ljónagryfjan kvödd: „Hérna var sagan skrifuð“ GAZið: „Ætla að reyna aðeins meira á mig“ Haukar og Valur byrja Bónus deildina á sigrum „Okkur fannst það skylda að klára með sigri“ Uppgjörið: Njarðvík - Grindavík 60-54 | Kvöddu Ljónagryfjuna með sigri Ljónagryfjan kvödd í kvöld Sævar og Stefán misstu andlitið í beinni: „Það leið næstum yfir mig“ Dikembe Mutombo látinn Enginn „heimsendir“ verði Keflavík ekki Íslandsmeistari Teitur valdi besta Íslendinginn í Bónus deildinni Taka inn nýjan mann eftir stutt stopp Franck í Þorlákshöfn Tryggvi með tíu í fyrsta leik Valsmenn neituðu að veita viðtöl „Mátti þetta ekki í Þýskalandi“ Martin magnaður í fyrsta sigrinum „Einhver náttúrulegasta þrenna sem ég hef séð“ Uppgjörið: Valur - Keflavík 88-98 | Öruggt hjá Keflavík og Finnur rekinn úr húsi Uppgjörið: Keflavík - Þór Ak. 82-86 | Þór skellti meisturunum Knicks og Timberwolves opna leikmannamarkaðinn með látum Ísold eltir annan draum: „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka í lífinu“ Tryggvi Snær í riðlakeppni Evrópubikarsins Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Sjá meira