Skoðun

Bætum líf kvenna og stúlkna í Sí­erra Leóne

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir og Stella Samúelsdóttir skrifa

Árið 1991 braust út borgarastríð í Síerra Leóne, tæplega átta milljóna íbúa ríki á vesturströnd Afríku, sem átti eftir að standa yfir í meira en áratug. Nauðgunum og kynbundnu ofbeldi gegn konum var markvisst beitt sem stríðsvopni á meðan á stríðinu stóð. Fjölda kvenna var rænt og þær þvingaðar í hjónabönd með vígamönnum. Um þriðjungur kvenna í landinu er talinn hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi í tengslum við stríðið.

Eftir að þessum hræðilega hildarleik lauk tók við tímabil langrar og strangrar uppbyggingar. Mörg sár þurfti að græða, bæði andleg og líkamleg. UN Women hefur tekið virkan þátt í þessari uppbyggingu í Síerra Leóne. Verkefni UN Women miða að því að auka kynjajöfnuð í landinu, auka þátttöku kvenna í stjórnmálum og atvinnulífi og veita þjónustu til þolenda kynbundins ofbeldis. Um leið hefur fræðsla um skaðsemi ofbeldis verið efld, því við vitum að fræðsla er undirstaða varanlegra breytinga.

Árið 2018 urðu þau tímamót í alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands að samstarf hófst við Síerra Leóne. Ísland hefur meðal annars stutt við verkefni Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) sem miða að því að bæta lífskjör kvenna og stúlkna sem þjást af fæðingarfistli, sjúkdómi sem veldur örkumli ungra kvenna sem ekki eru líkamlega tilbúnar til að eignast börn.

UN Women hefur um árabil verið ein af áherslustofnunum Íslands í þróunarsamvinnu og eiga verkefni stofnunarinnar í Síerra Leóne ríka samleið með áherslum Íslands í landinu. Ísland beitir svonefndri héraðsnálgun í samstarfslöndum sínum en hún felst í náinni samvinnu við heimafólk. Í Síerra Leóne vinnur UN Women náið með héraðs- og þorpshöfðingjum að verkefnum sem hafa það að markmiði að uppræta kynbundið ofbeldi, þar með talið limlestingum á kynfærum stúlkna. Talið er að um 83 prósent kvenna á aldrinum 15 til 49 ára hafi verið limlestar á kynfærum í Síerra Leóne. Algengast er að stúlkur séu skornar á aldrinum 10 til 14 ára.

Stuðningur utanríkisráðuneytisins við útrýmingu fæðingarfistils og verkefni UN Women við upprætingu limlestinga á kynfærum kvenna haldast í hendur, þar sem fæðingarfistill er oftar en ekki afleiðing kynfæralimlestinga.

FO-herferð UN Women á Íslandi árið 2023 styður við verkefni stofnunarinnar í Síerra Leóne sem hafa það að markmiði að uppræta kynbundið ofbeldi. Það er augljóst að þörfin er afar mikil. Við þetta tilefni viljum við benda á að rödd Íslands er ætíð sterk þegar jafnrétti kynjanna og baráttan gegn kynbundnu ofbeldi er rædd á alþjóðavettvangi. Það er því mikilvægt að halda áfram að beita henni við hvert tækifæri sem gefst og fylgja henni eftir í verki. Samstarf íslenskra stjórnvalda og UN Women á Íslandi er gott dæmi þar um.

Höfundar eru Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra og Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×