Erlent

Enn bætist í hóp fram­bjóð­enda hjá repúbli­könum

Kjartan Kjartansson skrifar
Tim Scott, öldungadeildarþingmaður frá Suður-Karólínu, er afar trúrækinn. Hann vitnar oft í ritninguna á framboðsfundum.
Tim Scott, öldungadeildarþingmaður frá Suður-Karólínu, er afar trúrækinn. Hann vitnar oft í ritninguna á framboðsfundum. AP/Meg Kinnard

Tíundi frambjóðandinn bætist við í forvali Repúblikanaflokksins fyrir forsetakosningar á næsta ári þegar Tim Scott, öldungadeildarþingmaður flokksins, lýsir formlega yfir framboði sínu í dag. Fastlega er búist við því að Ron DeSantis, ríkisstjóri Flórída og helsti áskorandi Donalds Trump, kynni sitt framboð í vikunni. 

Scott, sem er 57 ára gamall, er eini svarti öldungadeildarþingmaður Repúblikanaflokksins. Hann ætlar að kynna framboð sitt í gamla háskólanum sínum í North-Charleston í Suður-Karólínu í dag, að sögn AP-fréttastofunnar. Í framhaldinu ferðast hann til Iowa og New Hampshire, fyrstu ríkjanna sem halda forval á næsta ári.

Að mörgu leyti er Scott sagður hefðbundinn repúblikani. Hann vill skera niður ríkisútgjöld og takmarka aðgengi kvenna að þungunarrofi. Þannig hefur hann sagst vilja lögfesta bann við þungunarrofi eftir fimmtándu viku meðgöngu verði hann forseti. 

Ólíkt flokkssystkinum sínum tók Scott undir sumar kröfur um umbætur hjá lögreglunni í kjölfar drápsins á George Floyd árið 2020. Þó að Scott hafi einstaka sinnum gagnrýnt Trump vegna kynþáttamálefna hefur samband þeirra verið gott.

Staða Scott í forvalinu er sterk að því leyti að enginn frambjóðandi til forseta hefur átt eins digra kosningasjóði og hann. Það gerir honum kleift að auglýsa sig grimmt í ríkjunum sem kjósa fyrst í forvalinu.

Við ramman reip að draga

Eins og sakir standa eru möguleikar Scott og annarra frambjóðenda takmarkaðir. Trump, sem drottnar enn yfir Repúblikanaflokknum þrátt fyrir að hafa leitt hann til ósigra í kosningum eftir að hann náði kjöri sem forseti, lýsti yfir sínu framboði strax eftir þingkosningarnar í haust.

Þá er gengið að því sem vísu að Ron DeSantis, ríkisstjóri Flórída, tilkynni um framboð sitt í vikunni. Hann var nánast jafn Trump í skoðanakönnunum á tímabili en aðeins hefur fjarað undan honum upp á síðkastið.

Á meðal annarra frambjóðenda eru Nikki Haley, sendiherra Trump við Sameinuðu þjóðirnar og fyrrverandi ríkisstjóri Suður-Karólínu, og Asa Hutchinson, ríkisstjóri Arkansas auk nokurra minni spámanna.

Hjá demókrötum hafa aðeins tveir frambjóðendur skorað Joe Biden forseta á hólm til þessa. Það eru þau Marianne Williamson, sem bauð sig einnig fram árið 2020 með litlum árangri, og Robert F. Kennedy yngri, samsæriskenningarsinni og bróðursonur John F. Kennedy, fyrrverandi forseta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×