Eng­lands­meistararnir unnu Chelsea

Aron Guðmundsson skrifar
Alvarez skoraði eina mark leiksins fyrir Englandsmeistara Manchester City
Alvarez skoraði eina mark leiksins fyrir Englandsmeistara Manchester City Vísir/Getty

Englandsmeistarar Manchester City unnu í dag 1-0 sigur á Chelsea í ensku úrvalsdeildinni. Julian Alvarez skoraði eina mark leiksins á 12.mínútu.

Í gær varð ljóst að Manchester City væri orðið Englandsmeistari, þriðja tímabilið í röð. Tap Arsenal gegn Nottingham Forest sá til þess.

Leikmenn Manchester City mættu því í afar góðu skapi inn í leik dagsins og blásið var til sigurhátíðar á Etihad leikvanginum. 

Með sigrinum er Manchester City komið í 88 stig í 1.sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Chelsea er hins vegar í basli með 43 stig í 12.sæti og að engu að keppa. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira