Enski boltinn

Jón Daði og félagar úr leik

Smári Jökull Jónsson skrifar
Jón Daði Böðvarsson, sóknarmaður Bolton Wanderers á Englandi
Jón Daði Böðvarsson, sóknarmaður Bolton Wanderers á Englandi Vísir/Getty

Bolton Wanderers er úr leik í umspili um sæti í Championship deildinni á næsta tímabili eftir 1-0 tap gegn Barnsley nú í kvöld.

Jón Daði Böðvarsson var ekki í leikmannahópi Bolton vegna meiðsla en hann meiddist á ökkla í janúar og hefur ekkert náð að spila síðan þá.

Leikurinn í kvöld var seinni leikur liðanna í umspilinu en fyrir sigurvegarann bíður lið Sheffield Wednesday sem vann sigur Peterborough United eftir vítaspyrnukeppni í gær.

Fyrir leikur liðanna sem mættust í kvöld lauk með 1-1 jafntefli á heimavelli Bolton. Liam Kitching náði forystunni fyrir Barnsley á 24. mínútu leiksins og þrátt fyrir atlögu Bolton tókst þeim ekki að jafna metin.

Lokatölur 1-0 og Barnsley mætir því Sheffield Wednesday í hreinum úrslitaleik um sæti í Championship deildinni á Englandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×