Bíó og sjónvarp

Col­ton Underwood loksins genginn í það heilaga

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Þeir Colton Underwood og Jordan C. Brown áttu líklega besta dag lífs síns um helgina.
Þeir Colton Underwood og Jordan C. Brown áttu líklega besta dag lífs síns um helgina. Instagram

Banda­ríski raun­veru­leika­þátta­stjarnan Col­ton Underwood úr Bachelor þáttunum er alls enginn pipar­sveinn lengur en hann gifti sig loksins unnustanum Jordan C. Brown um helgina. Meira en ár síðan elsk­endurnir trú­lofuðu sig.

Col­ton er lík­lega einn þekktasti pipar­sveinn sögunnar úr banda­rísku raun­veru­leika­þáttunum heims­frægu en hann birtist fyrst í Bachelorette þáttunum árið 2018. Vakti hann mikla at­hygli í það skiptið enda tönnlaðist hann ítrekað á því að hann væri hreinn sveinn.

Þyrnum stráð leit að ástinni

Síðar sama ár tók Col­ton þátt í strandar­út­gáfunni Bachelor in Para­dise en ekkert gekk í ástar­leitinni. Hann fékk þá sína eigin seríu og var aðal­númerið í eigin Bachelor seríu sama ár, 2018. Kynntist hann þar Cassi­e Randolph og trú­lofuðu þau sig sama ár en hættu saman árið 2020.

Sakaði Randolph hann um alls­kyns ó­sæmi­lega hegðun og sótti hún um nálgunar­bann gegn NFL leik­manninum vegna skila­boða hans auk hegðunar. Ári síðar kom Col­ton svo úr skápnum í morgun­frétta­þættinum Good Morning America.

Hann opnaði sig svo upp á gátt í eigin þáttum á Net­flix sem báru heitið Coming out Col­ton. Hann hefur reglu­lega lýst því yfir upp á síð­kastið að hann hafi aldrei verið hamingju­samari en ljóst er að lífs­hlaup kappans hefur verið þyrnum stráð.

Þriggja daga brúð­kaup

Í um­fjöllun banda­ríska slúður­miðilsins Peop­le um brúð­kaupið kemur fram að þeir hafi gift sig á lúxus­hóteli í Napa sýslu norður af San Francisco í Kali­forníu.

Um var að ræða þriggja daga veislu þar sem 200 manns mættu til að gleðjast með þeim Col­ton og Brown en brúð­kaupið var skipu­lagt af við­burðar­fyrir­tækinu Ashley Smith E­vents. Þeir buðu sínum nánustu til kvöld­verðar á föstu­dags­kvöld og fór sjálf at­höfnin svo fram á laugar­deginum.

„Sama dag og við giftum okkur ætlum við að halda diskópartý við sund­laugina,“ hefur banda­ríski miðillinn eftir Col­ton í að­draganda brúð­kaupsins. „Þetta verður skemmti­legt brúð­kaup, það get ég sagt þér!“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.