Íslendingaliðið hóf undanúrslitin á sigri Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 11. maí 2023 18:08 Óðinn Þór Ríkharðsson er leikmaður Kadetten Schaffhausen. Kadetten Íslendingalið Kadetten Schaffhausen, undir stjórn Aðalsteins Eyjólfssonar, vann góðan sex marka sigur er liðið tók á móti Pfadi Winterthur í fyrsta leik liðanna í undanúslitum svissnesku úrvalsdeildarinnar í handbolta í dag, 34-28.
Kadetten Schaffhausen og Pfadi Winterthur höfnuðu í öðru og þriðja sæti deildarkeppninnar á tímabilinu og því ljóst að um spennandi undanúrslitaeinvígi var að ræða. Heimamenn í Kadetten, með Óðinn Þór Ríkharðsson fremstan í fylkingu tóku þó völdin snemma leiks og náðu mest átta marka forskoti í fyrri hálfleik. Liðið leiddi með sjö mörkum þegar flautað var til hálfleiks, staðan 21-14, og stefndi í að Kadetten myndi vinna auðveldan sigur. Gestirnir voru þó ekki á því að gefast upp og mættu ákveðnir til leiks í síðari hálfleik. Liðsmenn Pfadi Winterthur skoruðu tíu af fyrstu tólf mörkum seinni hálfleiksins og náðu forystunni í stöðunni 23-24. Þá tóku heimamenn hins vegar við sér á ný, náðu tökum á leiknum á nýjan leik og unnu að lokum sex marka sigur, 34-28. Óðinn Þór Ríkharðsson var eins og svo oft áður drjúgur í markaskorun fyrir Kadetten og skoraði tíu mörk í kvöld. Kadetten leiðir því einvígið 1-0 eftir leik dagsins, en vinna þarf þrjá leiki til að komast í úrslit.
Handbolti Mest lesið „Hagsmunum félagsins best borgið með sölu á leikmanninum“ Íslenski boltinn „Vonast til að vera sendiherra fyrir alla leikmenn Palestínu“ Fótbolti Ástbjörn missir af næstu leikjum KR Íslenski boltinn Slot sáttur fyrir hönd Trent Alexander-Arnold Enski boltinn Bologna gerði sér lítið fyrir og lagði topplið Inter Fótbolti Sturluð staðreynd um afrek Eyglóar Sport Segir Akureyri á hjara veraldar og varð hugfanginn í Sjallanum Sport Piastri sigraði í Jeddah og leiðir keppni ökumanna Formúla 1 Losað um hlekki Jóns Dags sem lagði upp eftir tuttugu sekúndur Fótbolti Evrópumeistararnir fóru hamförum Fótbolti Fleiri fréttir Einar Þorsteinn hafði betur gegn Guðmundi Braga Elvar Örn öflugur þegar Melsungen jafnaði toppliðið að stigum Haukar í undanúrslit á meðan ÍR og Selfoss þurfa oddaleik Kraftanna óskað á öðrum vígstöðvum Lena Margrét til Svíþjóðar Orri Freyr skaut Sporting í undanúrslitin Dramatík á Hlíðarenda Sturlaður Viggó tryggði Erlangen stig Rekinn út af eftir 36 sekúndur Uppgjörið: FH - Fram 24-27 | Fram komið yfir í einvígi sínu við FH Ótrúleg dramatík hjá Aldísi Ástu „Held með Arsenal og það að fagna einhverju of snemma er bara heimskulegt“ Selfoss byrjar á sigri Uppgjörið: Haukar - ÍBV 26-20 | Heimakonur sýndu gæðin í seinni hálfleik Færeyjar fylgja Íslandi á sitt fyrsta HM Bjarki markahæstur í úrslitaleiknum en Janus varð bikarmeistari Elvar markahæstur hjá Melsungen í úrslitaleiknum Íslendingalið leika til úrslita í bikarkeppnum Fimmti sigur strákanna hans Arnórs í röð Haukur bikarmeistari í Rúmeníu Kolstad í undanúrslit eftir annan risasigur Hugurinn hjá hinum raunverulegu fórnarlömbum Dagur með markahæstu mönnum í stórsigri Yfirlýsing frá landsliðinu: „Förum fram á að Ísrael verði meinuð þátttaka“ Stelpurnar földu auglýsingu Rapyd eftir sigurinn Myndasyrpa: Tryggðu HM-sætið og kvöddu Steinunni „Alsæl með að skilja við liðið á leiðinni á HM“ „Þungu fargi létt eftir afar tilfinningaþrungna viku“ Steinunn hætt í landsliðinu Uppgjörið: Ísrael - Ísland 21-31 | Íslenska liðið á leið á sitt þriðja stórmót í röð Sjá meira