Skoðun

Til hamingju með Evrópudaginn

Jón Steindór Valdimarsson skrifar

Níundi maí er merkisdagur. Þá fagnar gjörvöll Evrópa friði og einingu í álfunni í áratugi. Dimmur skuggi árásarstríðs Rússa á Úkraínu hvílir þó yfir og er harkaleg áminning um að friðurinn er brothættur og alls ekki sjálfgefinn.

Einmitt þennan dag árið 1950 kynnti franski utanríkisráðherrann Robert Schuman yfirlýsingu sem síðan er kennd við hann. Þar er lagður grunnur að náinni samvinnu Evrópuþjóða, sem er nú orðinn að Evrópusambandinu. Óhætt er að fullyrða að með þessum hætti hafi þjóðirnar bundist böndum sem hafa mótað Evrópu friðar og aukinnar hagsældar sem erfitt er að sjá fyrir sér að ella hefði orðið.

Friður, eining, mannréttindi og stöðugleiki, ásamt sjálfbærni, umhverfis- og loftslagsmálum eru meðal margra viðfangsefna sem verður að vinna í sameiningu ef alvöru árangur á að nást.

Ekki er hægt að ætlast til þess að aðrir sjái um að varðveita sameiginleg gildi og réttindi eða halda uppi kerfi sem kemur öllum til góða. Það verða allir að leggja sitt af mörkum. Þau grundvallarsannindi kennir sagan af litlu gulu hænunni, en stundum virðast þau sannindi gleymd og grafin.

Ísland er sjálfstætt og fullvalda ríki og á að vera ófeimið við að taka þátt í nánu samstarfi með öðrum ríkjum sem líka eru sjálfstæð og fullvalda.

Aðild að Evrópusambandinu er sjálfsagt og eðlilegt skref fyrir Ísland að taka. Það á að treysta þjóðinni til þess að taka þá ákvörðun, en ekki láta stjórnmálaflokkana um að ráða þeirri för.

Það verður best gert með tvöfaldri þjóðaratkvæðagreiðslu, fyrst um að taka upp aðildarviðræður og síðan um aðildarsamning.

Kannanir sýna glöggt vaxandi áhuga almennings á að Ísland gangi í Evrópusambandið og mikill meirihluti styður að haldin verði þjóðaratkvæðagreiðsla um næsta skref.

Evrópuhreyfingin var stofnuð fyrir réttu ári til þess að vinna að þeim markmiðum sem að framan er lýst. Hún fagnar því í senn Evrópudeginum og árs afmæli sínu.

Evrópuhreyfingin óskar öllum til hamingju með Evrópudaginn og hvetur fólk til að ganga í Evrópuhreyfinguna og skrá sig á www.evropa.is

Höfundur er formaður Evrópuhreyfingarinnar.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×