Erlent

Húsleit gerð á heimili Bolsonaro vegna falsanamáls

Kjartan Kjartansson skrifar
Bolsonaro ræðir við fréttamenn eftir að alríkislögreglumenn leituðu á heimili hans í dag.
Bolsonaro ræðir við fréttamenn eftir að alríkislögreglumenn leituðu á heimili hans í dag. AP/Eraldo Peres

Alríkislögreglumenn gerðu húsleit á heimili Jairs Bolsonaro, fyrrverandi forseta Brasilíu, og lögðu hald á síma hans í höfuðborginni Brasilíu í morgun. Húsleitin er sögð tengjast rannsókn á meintum fölsunum á bólusetningarskírteinum vegna Covid-19.

Húsleitir voru gerðar á fleiri stöðum og nokkrir eiga yfir höfði sér handtöku, að sögn lögregluyfirvalda. Bolsonaro staðfesti sjálfur að leitað hefði verið heima hjá honum. AP-fréttastofan hefur eftir heimildum sínum innan lögreglunnar að Mauro Cid, einn nánasti bandamaður Bolsonaro, hafi verið handtekinn.

Rannsóknin snýst um falsaðar upplýsingar um bólusetningar gegn Covid-19 innan heilbrigðiskerfisins. Brasilískir fjölmiðlar halda því fram að átt hafi verið við bólusetningarskírteini Bolsonaro, ráðgjafa hans og ættingja. Það hafi gert þeim kleift að ferðast til Bandaríkjanna en þarlend stjórnvöld gerðu kröfu um að ferðalangur væru bólusettir gegn veirunni.

Bolsonaro gerði lítið úr alvarleika faraldursins þegar hann stóð sem hæst. Neitaði hann að láta bólusetja sig og sáði efasemdum um gagnsemi bóluefnanna þrátt fyrir að næstflest dauðsföll af völdum veirunnar hafi verið í Brasilíu. Hann heldur því fram að engum gögnum hafi verið breytt og að hann hafi aldrei verið bólusettur.

Fleiri rannsóknir voma yfir Bolsonaro. Alríkislögreglan hefur í tvígang kallað hann til skýrslutöku, annars vegar vegna skartgripa sem hann þáði frá Sádum og hins vegar vegna hans þáttar í óeirðum stuðningsmanna hans við þinghúsið í janúar. Þá er hann til rannsóknar vegna upplýsingafals um kosningarnar sem hann tapaði og aðildar að þjóðarmorði á frumbyggjaþjóð í Amasonfrumskóginum.


Tengdar fréttir

Ákæra fyrir árásina á þinghús Brasilíu

Dómsmálaráðherra Brasilíu hefur nú ákært þrjátíu og níu einstaklinga fyrir aðild að árásinni á brasilíska þinghúsið á dögunum, eða þann áttunda janúar síðastliðinn.

Bolsonaro til rannsóknar vegna óeirðanna

Jair Bolsonaro, fyrrverandi forseti Brasilíu er grunaður um að hafa hvatt til mótmæla sem leiddu til árásanna á helstu opinberu byggingar Brasilíuborgar. Hæstiréttur landsins hefur staðfest að rannsókn á óeirðunum muni meðal annars snúa að þætti forsetans fyrrverandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×