Innlent

Styrkleikar Krabbameinsfélagsins á Selfossi um helgina

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Styrkleikarnir fara fram á Selfossi um helgina í annað skipti. Styrkleikarnir eru heill sólarhringur af ævintýrum, samstöðu og samkennd þar sem allir geta látið gott af sér leiða fyrir einstaklinga sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur þeirra.
Styrkleikarnir fara fram á Selfossi um helgina í annað skipti. Styrkleikarnir eru heill sólarhringur af ævintýrum, samstöðu og samkennd þar sem allir geta látið gott af sér leiða fyrir einstaklinga sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur þeirra. Aðsend

Styrkleikar Krabbameinsfélagsins verða haldnir í annað sinn dagana 29. apríl til 30. apríl í Lindexhöllinni á Selfossi. Viðburðurinn er opinn öllum og það kostar ekkert að vera með.

Fyrstu Styrkleikarnir fóru fram á Selfossi í fyrra þar sem hátt í 600 manns gengu 19.812 hringi sem jafngildir 4.755 km. Til að setja þá vegalengd í samhengi var farið rúmlega þrjá og hálfan hring í kringum Ísland á þessum sólarhring. Auk þess litu hátt í 1000 manns við í Íþróttahöllinni á meðan á viðburðinum stóð, fylgdust með dagskránni og gengu nokkra hringi í leiðinni.

„Styrkleikarnir eru heill sólarhringur af ævintýrum, samstöðu og samkennd þar sem allir geta látið gott af sér leiða fyrir einstaklinga sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur þeirra. Heiðursgestir leikanna eru þeir sem greinst hafa með krabbamein og sérstök dagskrá tileinkuð þeim,“ segir Eva Íris Eyjólfsdóttir, verkefnastjórastjóri Styrkleikanna.

Styrkleikarnir ganga þannig fyrir sig að einstaklingar skrá sig í lið sem vinnur saman að því að halda boðhlaupskefli á hreyfingu í heilan sólarhring með því að skiptast á að ganga, skokka eða hlaupa fyrirfram ákveðna leið. Hægt er að velja um þrjár vegalengdir. Fólk þarf ekki að vera hluti af liði til að vera með því hægt er að skrá sig í „Landsliðið”, sem er öllum opið. Á svæðinu er mjög gott hjólastólaaðgengi. Mikið er lagt upp úr því að viðburðurinn sé fyrir alla og allir geti tekið þátt á sínum hraða.

Eva Íris Eyjólfsdóttir, verkefnastjórastjóri Styrkleikanna.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Sérstök ljósastund er haldin á laugardagskvöldinu klukkan 22:00  þegar dimma tekur þar sem kveikt er á kertum í ljósberum sem þátttakendur hafa keypt og skreytt yfir daginn. „Á ljósastundinni minnumst við þeirra sem við höfum misst og hugsum til þeirra sem eru að takast á við veikindi. Viðburðurinn er sérstaklega fjölskylduvænn og býður upp á einstaka upplifun og fjölbreytta dagskrá fyrir alla aldurshópa, s.s. tónlist, dans og hoppukastala,” segir Eva Íris.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×