Skoðun

Mikil­vægt að standa saman að bættum kjörum fanga

Bjarnheiður Pálína Björgvinsdóttir skrifar

Rauði krossinn deilir þeim áhyggjum sem fram komu í umfjöllun Kompás um andlega veika fanga á Stöð 2 á mánudag. Við höfum verulegar áhyggjur af einstaklingum sem glíma við fatlanir og alvarlegan geðrænan vanda og eru að afplána dóma í fangelsum landsins, en samkvæmt Páli Winkel, fangelsismálastjóra, eru um fjórir til átta einstaklingar hverju sinni í fangelsunum sem ættu frekar að vera á geðheilbrigðisstofnunum.

Aðstoð eftir afplánun er verkefni á vegum Rauða krossins sem er ætlað að veita einstaklingum í afplánun stuðning þegar þeir eru að koma út í samfélagið á ný. Stuðningurinn kemur frá sjálfboðaliða sem aðstoðar einstakling við ýmsa praktíska hluti í allt að eitt ár. Verkefnastjóri úrræðisins, Bjarnheiður Pálína Björgvinsdóttir, segir að fangelsin séu ekki rétti staðurinn fyrir þennan hóp.

„Það þarf að vera úrræði þar sem þessir einstaklingar fá þá geðheilbrigðisþjónustu og stuðning sem þeir þurfa,” segir hún. „Þetta er brýnt málefni og það þarf að efla heilbrigðisþjónustu við fanga með áherslu á bætta geðheilbrigðisþjónustu, en mikilvægt er að horft sé með heildrænum hætti á málið og þannig sé tryggð samhæfð þjónusta fyrir þennan hóp, einnig eftir að afplánun lýkur.“

Skortur á viðeigandi geðheilbrigðisþjónustu

Áhyggjur Rauða krossins snúa fyrst og fremst að því hvort þessir einstaklingar fái viðeigandi geðheilbrigðisþjónustu á meðan á afplánun stendur. Skortur á viðeigandi þjónustu og öryggi fyrir verulega veika einstaklinga í fangelsum landsins getur talist brot á Mannréttindasáttmála Evrópu – því það getur flokkast sem svo að þessum föngum sé ekki tryggð viðeigandi læknisþjónusta. Mikilvægt er að heilbrigðisyfirvöld og fangelsin vinni betur saman, því í fangelsum skulu fangar njóta sambærilegrar heilbrigðisþjónustu og almennt gildir, auk þeirrar sérstöku heilbrigðisþjónustu sem lög og reglur um fanga segja til um.

Gagnrýni frá eftirlitsaðilum

Það er vilji allra þeirra sem koma að fangelsismálum að sinna þessum hópi vel og með hagsmuni þeirra að leiðarljósi, en það virðist vera úrræðaleysi í kerfinu.

Pyntinganefnd Evrópuráðs hefur ítrekað gert athugasemdir við stöðu fangelsismála á Íslandi og í byrjun árs gáfu mannréttindasamtökin Amnesty International út skýrslu sem fjallaði um einangrunarvistun í fangelsum hér á landi. Þar segir að misbeiting einangrunarvistar sé umfangsmikil og tekið fram að það eigi einnig við um einangrunarvistun barna og einstaklinga með fatlanir og geðraskanir.

Einangrunarvist skal vera háð ströngum skilyrðum og skal aðeins vara í sem skemmstan tíma, samkvæmt alþjóðalögum. Eins og staðan er í dag er veikum einstaklingum boðið upp á ómannúðlegar aðstæður. Það er verið að kalla eftir breytingum og stjórnvöldum ber skylda til þess að bregðast við því ákalli.

Höfundur er verkefnastjóri í verkefninu Aðstoð eftir afplánun hjá Rauða krossinum á Íslandi.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×