Tuchel gæti misst starfið sitt hjá Bayern Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 24. apríl 2023 15:30 Farið er að hitna undir Thomas Tuchel. getty/Harry Langer Svo gæti farið að Thomas Tuchel myndi missa starfið sitt hjá Bayern München aðeins nokkrum vikum eftir að hann var ráðinn.
Þann 24. mars tók Tuchel við Bayern af Julian Nagelsmann sem var látinn taka pokann sinn. Ekki hefur gengið sem skildi síðan Tuchel var ráðinn og Bæjarar hafa aðeins unnið tvo af sjö leikjum undir hans stjórn og eru úr leik í þýsku bikarkeppninni og Meistaradeild Evrópu. Bayern hefur tapað þremur leikjum síðan Tuchel tók við, jafn mörg og liðið tapaði í 37 leikjum undir stjórn Nagelsmanns í vetur. Samkvæmt Bild mun stjórn Bayern koma saman 22. maí, fimm dögum fyrir lokaleik liðsins á tímabilinu. Þar verður framtíð Tuchels ekki bara til umræðu heldur einnig staða Olivers Kahn, framkvæmdastjóra félagsins, og íþróttastjórans Hasans Salihamidzic. Þeir þykja valtir í sessi. Kahn tók við starfi framkvæmdastjóra Bayern sumarið 2021 og er samningsbundinn félaginu til 2024. Salihamidzic hefur starfað sem íþróttastjóri Bayern frá 2017. Bayern missti toppsæti þýsku úrvalsdeildarinnar um helgina. Liðið laut í lægra haldi fyrir Mainz, 3-1, og Borussia Dortmund nýtti tækifærið og skaust á toppinn með 4-0 sigri á Frankfurt. Næsti leikur Bayern er gegn Herthu Berlin á sunnudaginn.
Þýski boltinn Mest lesið Konurnar aftur fleiri og sex fædd eftir 2000: Topp tíu listinn í ár Sport Látnir æfa á jóladag Enski boltinn Rashford á lausu yfir jólin Fótbolti Entist ekki lengi í fyrsta þjálfarastarfinu Enski boltinn Gísli fyrr heim í frí eftir árásina í Magdeburg Handbolti „Allt er svo erfitt“ Enski boltinn Beint af HM á sjúkrahús vegna sjaldgæfs taugasjúkdóms Sport Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark Fótbolti Óvænt úrslit á HM í pílu í kvöld Sport Mætir á leik í fyrsta sinn eftir að hjartað stoppaði Fótbolti Fleiri fréttir „Ég hætti í landsliðinu þegar ég hætti í fótbolta“ Héldu í hefðina og köstuðu þúsundum bangsa inn á völlinn Entist ekki lengi í fyrsta þjálfarastarfinu „Allt er svo erfitt“ Látnir æfa á jóladag Mætir á leik í fyrsta sinn eftir að hjartað stoppaði Logi frá FH til Króatíu Rashford á lausu yfir jólin Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark „Við vorum taugaóstyrkir“ Salah sló þrjú met í dag Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Útsalah á mörkum í Lundúnum Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Öruggt hjá Real Madrid gegn Sevilla Liverpool liðið ferðast mest yfir jólin Fjórar knattspyrnukonur handteknar Jackson komst upp fyrir Eið Smára Heiður að vera keypt á metfé frá Val: „Stórt og gott skref“ Sara Björk á skotskónum í Sádi-Arabíu Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Endar Rashford í Sádí-Arabíu? Saka yfirgaf Selhurst Park á hækjum Bellingham tryggði Sunderland sigurinn Atletico rændi sigrinum í blálokin Juric tekinn við Southampton Arsenal valtaði yfir Crystal Palace Isak með þrennu í stórsigri Newcastle Sjá meira