Fótbolti

Guðlaugur lagði upp í öðrum sigri DC United í röð

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Guðlaugur Victor Pálsson og félagar hans í DC United unnu góðan sigur í nótt.
Guðlaugur Victor Pálsson og félagar hans í DC United unnu góðan sigur í nótt. Jose Argueta/ISI Photos/Getty Images

Guðlaugur Victor Pálsson og félagar hans í DC United unnu góðan 3-1 útisigur er liði heimsótti Orlando City í MLS-deildinni í fótbolta í nótt. Guðlaugur Victor lagði upp þriðja mark liðsins.

Taxiarchis Fountas kom gestunum í DC United í forystu strax á 15. mínútu leiksins áður en Duncan McGuire jafnaði fyrir heimamenn átta mínútum síðar og staðan var því 1-1 þegar flautað var til hálfleiks.

Donovan Pines kom svo gestunum yfir á nýjan leik snemma í síðari hálfleik áður en Christian Benteke innsiglaði sigurinn með marki á 62. mínútu eftir stoðsendingu frá Guðlaugi Victori Pálssyni.

Dagur Dan Þórhallsson kom inn á sem varamaður fyrir Orlando City á 68. mínútu, en náði ekki að breyta gangi leiksins.

DC United situr nú í áttunda sæti Austurdeildar MLS-deildarinnar með 11 stig eftir níu leiki, en eftir slæmt gengi liðsins undanfarnar vikur hefur liðið nú unnið tvo leiki í röð.

Þá var Þorleifur Úlfarsson ónotaður varamaður er Houston Dynamo vann 1-0 sigur gegn Inter Miami í Vesturdeildinni og í NWSL-deildinni var Svava Rós Guðmundsdóttir einnig ónotaður varamaður í 1-0 sigri Gotham gegn North Carolina Courage.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×