Lífið

Sögð vera byrjuð saman á ný

Máni Snær Þorláksson skrifar
Liam Reardon og Millie Court eru sögð vera byrjuð saman á ný.
Liam Reardon og Millie Court eru sögð vera byrjuð saman á ný. Getty/Ricky Vigil M

Parið Millie Court og Liam Reardon stóðu uppi sem sigurvegarar í sjöundu þáttaröð raunveruleikaþáttanna Love Island. Síðasta sumar hættu þau saman en nú, níu mánuðum síðar, eru þau sögð vera byrjuð að rugla saman reitum á ný.

Þeim Court og Reardon tókst að heilla aðdáendur Love Island um sumarið árið 2021. Parið bar sigur úr býtum í raunveruleikaþáttaröðinni og í kjölfarið hófst samband þeirra utan Ástareyjunnar. Það entist þó ekki svo lengi þar sem þau sögðu skilið við hvort annað í júlí árið 2022.

Nú virðist þó vera sem þau séu byrjuð saman aftur á ný ef marka má heimildir breskra slúðurmiðla. Samkvæmt heimildum Daily Mail eyddu þau páskunum saman í sveitinni á norð-vestur Englandi. „Millie og Liam eru byrjuð að tala saman á ný en þetta er ennþá á byrjunarstigi,“ er haft eftir heimildarmanni Daily Mail sem sagður er vera náinn parinu.

„Þau voru ekki að búast við því að byrja saman eftir sambandsslitin því þau voru svo sársaukafull fyrir þau bæði. Mánuðir hafa liðið síðan þá og þau gátu ekki hætt að hugsa um hvort annað.“

Þá segir heimildarmaðurinn að parið sé að taka því rólega og sjá hvort þau geti endurbyggt sambandið sitt. Það eigi þó eftir að taka tíma.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.