Lífið

Kyli­e Jenner orðuð við heims­frægan leikara

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Eru Kylie Jenner og Timothée Chalamet nýjasta par Hollywood?
Eru Kylie Jenner og Timothée Chalamet nýjasta par Hollywood? Getty/Samsett

Raunveruleikastjarnan og athafnakonan Kylie Jenner og leikarinn Timothée Chalamet eru sögð vera að stinga saman nefjum. Frá þessu greina slúðurmiðlar vestanhafs en orðrómurinn fór á kreik eftir að þau mættu saman á tískusýningu fyrr á árinu.

Það var slúðurveitan deuxmoi sem greindi fyrst frá, eftir að henni hafði borist þó nokkrar ábendingar um málið. Nýlega sáust þau svo snæða kvöldverð saman ásamt systur Kylie, Kendall Jenner, og kærasta hennar, Bad Bunny.

Þessi orðrómur virðist koma netverjum í nokkuð opna skjöldu sem virðast flestir vera á því máli hér sé um að ræða mjög svo ófyrirsjáanlega pörun.

Kylie Jenner er, eins og frægt er, ein af Kardashian-systrunum heimsþekktu sem slegið hafa í gegn í samnefndum raunveruleikaþáttum. Kylie stofnaði snyrtivörumerkið Kylie Cosmetics þegar hún var aðeins sautján ára gömul. Síðan þá hefur hún látið til sín taka í viðskiptalífinu og er hún í dag metin á 750 milljónir Bandaríkjadollara.

Timothée er franskur og bandarískur leikari. Hann er líklega þekktastur fyrir leik sinn í kvikmyndunum Dune, Call Me by Your Name, Little Women og Lady Bird. Þá fer hann einnig með aðalhlutverk í myndinni Wonka sem væntanleg er síðar á þessu ári.

Sjá einnig: Fyrstur manna á forsíðu breska Vogue

Timothée Chalamet fer með hlutverk Willy Wonka í nýrri mynd.imdb

Timothée er 28 ára gamall og Kylie er 25 ára. Kylie á tvö börn með barnsföður sínum, tónlistarmanninum Travis Scott.

Kylie og Travis höfðu átt í slitróttu sambandi í rúmlega fimm ár. Í upphafi árs fór svo orðrómur á kreik að þau hefðu slitið sambandinu. Haft var eftir heimildarmanni People að þau væru með ólíkar áherslur í lífinu og myndu að öllum líkindum ekki byrja saman aftur.

Kylie Jenner og Travis Scott eiga hina fimm ára gömlu Stormi og hinn eins árs gamla Aire saman.Getty/Tommaso Boddi

Tengdar fréttir

Fyrstur manna á forsíðu breska Vogue

Leikarinn Timothée Chalamet fékk þann heiður að vera fyrstur manna til þess að sitja einn á forsíðu tímaritsins breska Vogue. Þar fetar hann í fótspor söngvarans Harry Styles, sem var fyrsti maðurinn til þess að gera slíkt hið sama hjá ameríska Vogue árið 2020.

Kyli­e ekki lengur á toppnum

Athafnakonan og raunveruleikastjarnan Kylie Jenner er ekki lengur með flesta fylgjendur kvenna á Instagram. Leik- og söngkonan Selena Gomez hefur tekið fram úr.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.