Enski boltinn

Lampard segir Mount vera lykilmann fyrir Chelsea

Smári Jökull Jónsson skrifar
Frank Lampard fylgist með Mason Mount á æfingu Chelsea í dag.
Frank Lampard fylgist með Mason Mount á æfingu Chelsea í dag. Vísir/Getty

Frank Lampard tók við sem bráðabirgðastjóri hjá Chelsea í dag og var ekki lengi að hrósa Mason Mount en síðustu daga hefur verið rætt að Mount gæti verið á leið frá Stamford Bridge í sumar.

Chelsea rak Graham Potter á dögunum eftir aðeins nokkra mánuði í starfi. Frank Lampard var síðan í dag ráðinn knattspyrnustjóri út tímabilið en hann var einmitt rekinn frá Chelsea fyrir tæpum tveimur árum síðan. Luis Enrique er meðal þeirra sem hefur verið orðaður við knattspyrnustjórastöðuna hjá Lundaúnaliðinu.

Tækifæri Mount síðustu vikurnar hafa hins vegar verið af skornum skammti en samningur Mount rennur út sumarið 2024 og hafa samningaviðræður um nýjan samning gengið brösuglega.

Mount hefur verið orðaður við Liverpool síðustu daga og rætt að Jurgen Klopp vilji ólmur fá Mount til að styrkja miðsvæðið hjá Liverpool á næsta tímabili.

Þegar Frank Lampard var áður knattspyrnustjóri Chelsea var Mason Mount einn af hans uppáhaldsleikmönnum en enginn lék fleiri mínútur undir stjórn Lampard hjá Chelsea. Það kom því fáum á óvart í dag þegar Lampard jós Mount lofi.

„Mason hefur alltaf verið frábær leikmaður hjá mér, bæði hjá Derby og Chelsea,“ sagði Lampard á sínum fyrsta blaðamannafundi síðan hann tók við.

„Ég veit að hann hefur verið í meiðslaveseni. Ég þarf að tala við hann og sjá hvar hanns tendur, en ég veit hvað ég fæ frá Mason. Hann er lykilmaður fyrir Chelsea.“

Þá sagði Lampard einnig að það hefði verið auðveld ákvörðun að snúa aftur þegar tækifærið gafst.

„Þetta er mitt félag. Ég ber miklar tilfinningar til þess.“

„Ég kem hingað með þá trú að ég geti hjálpað þar til loka tímabilsins. Ég mun gera mitt allra besta til að færa stuðningsmönnunum það sem þeir vilja. Það eru miklir hæfileikar í hópnum og ég er spenntur að vinna með þá hæfileika og hjálpa leikmönnunum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×