Viðskipti erlent

Bandaríski seðlabankinn hækkar líka vexti

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Vextir í Bandaríkjunum hafa ekki verið hærri síðan á því herrans ári 2007.
Vextir í Bandaríkjunum hafa ekki verið hærri síðan á því herrans ári 2007. AP Photo/Seth Wenig

Bandaríski Seðlabankinn hefur ákveðið að hækka stýrivexti í landinu þrátt fyrir áhyggjur manna af því að slík aðgerð gæti aukið á óróann á fjármálamörkuðum en þar í landi hafa bankar verið að lenda í miklum vandræðum.

Vextirnir voru að þessu sinni hækkaðir um 25 punkta og verða því hér eftir fimm prósent og hafa ekki verið hærri þar í landi síðan árið 2007. Þetta var níunda vaxtahækkunin í röð í Bandaríkjunum en fyrir um ári voru vextir við það að vera neikvæðir en Seðlabanki Íslands er á svipaðri vegferð og hækkaði vextina í tólfta sinn í röð í gær.

Verðbólga í Bandaríkjunum mælist nú um 6 prósent og seðlabankastjórinn Jay Powell segir tilgang vaxtahækkana að koma böndum á hana. Powell fullyrti einnig þegar tilkynnt var um hækkunina að bankakerfið vestra væri stöðugt og á sterkum grunni og að bankar á borð við Silicon Valley sem fór á hausinn á dögunum væru undantekningartilfelli.

Á morgun er síðan vaxtaákvörðun hjá Seðlabanka Bretlands en þar í landi mælist verðbólgan nú 10,4 prósent sem kom greiningaraðilum í opna skjöldu á dögunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×