Innlent

Sak­sóknari fær frest til að á­kveða með á­kæru í hryðju­verka­máli

Kjartan Kjartansson skrifar
Karl Ingi Vilbergsson er saksóknari í hryðjuverkamálinu svonefnda sem snýst þó þessa stundina aðallega um vopnalagabrot eftir að dómstólar vísuðu hryðjuverkahluta ákærunnar frá.
Karl Ingi Vilbergsson er saksóknari í hryðjuverkamálinu svonefnda sem snýst þó þessa stundina aðallega um vopnalagabrot eftir að dómstólar vísuðu hryðjuverkahluta ákærunnar frá. Vísir/Vilhelm

Héraðssaksóknari fékk sjö vikna frest til þess að taka afstöðu til þess hvort gefin verði út ný ákæra í máli gegn tveimur karlmönnum sem hann sakaði um tilraun til hryðjuverka. Verjandi annars mannanna segir að koma verði í ljós hvort saksóknara takist að semja ákæru sem haldi vatni.

Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði frá köflum ákæru á hendur mönnunum tveimur sem fjölluðu um hryðjuverk í síðasta mánuði. Landsréttur staðfesti þá niðurstöðu í þarsíðustu viku. 

Eftir standa ákæruliðir vegna vopnalagabrota á hendur þeim báðum og vegna fíkniefnabrots og brots á lyfjalögum á hendur öðrum þeirra. Mennirnir tveir hafa játað vopnalagabrotin að hluta.

Karl Ingi Vilbergsson, saksóknari hjá embætti héraðssaksóknara, segir við Vísi að hann hafi óskað eftir fresti til þess að taka afstöðu til þess hvort hann gefi út nýja ákæru í málinu þegar það var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Dómari veitti frest til 8. maí. Samkvæmt lögum hefur ákæruvaldið þrjá mánuði til þess að gefa út nýja ákæru.

Saksóknari vildi ekki tjá sig um hversu líklegt hann teldi að gefin yrði út ný ákæra.

Sveinn Andri Sveinsson, verjandi annars mannanna, segir að verjendurnir nýti nú tímann og vinni greinargerðir um vopnalagabrotahluta ákærunnar. Þeir hafi ekki gert athugasemdir við að saksóknari fengi frest til að gera upp hug sinn.

„Ég get vel skilið að það þurfi langa tíma því það er alls ekki einfalt að búa til ákæru sem nær einhvern veginn að halda vatni,“ segir Sveinn Andri sem hefur verið afar gagnrýninn á meðferð lögreglu og saksóknara á málinu mannanna tveggja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×