Skoðun

10 ár frá lögfestingu Barnasáttmálans

Þóra Jónsdóttir skrifar

13. mars 2023 eru liðin 10 ár frá því að Barnasáttmálinn varð að lögum á Íslandi. Til hamingju kæru börn og við öll, með 10 ára afmæli lögfestingarinnar!

Barnaheill – Save the Children á Íslandi hafa Barnasáttmálann að leiðarljósi í öllum sínum störfum.

Drjúgur þáttur í starfsemi Barnaheilla er fræðsla um forvarnir gegn ofbeldi gegn börnum. Samtökin byggja þá vinnu aðallega á 19. og 34. grein Barnasáttmálans, sem báðar kveða á um rétt barna til verndar gegn ofbeldi og kynferðisofbeldi, en margar aðrar greinar sáttmálans skipta miklu máli svo börn njóti réttar síns til að vera vernduð gegn ofbeldi.

Á 10 ára lögfestingarafmæli Barnasáttmálans má spyrja hvað hafi áunnist. Fyrir fólk almennt úti í samfélaginu kann það að virðast harla lítið, því enn má heyra og lesa erfiðar sögur af ofbeldi sem börn verða fyrir, hvort sem er á heimilum sínum, í skólum, á stofnunum öðrum, eða annars staðar. En ef litið er til breytinga sem hafa orðið og eru að verða á lögum og framkvæmd á þjónustu við börn er augljóst að mikil viðhorfsbreyting hefur átt sér stað í garð réttinda barna. Því ber að fagna og það ákaft.

Með breyttum og jákvæðari viðhorfum til barna og réttinda þeirra skapast frjósamur jarðvegur til að rækta betra umhverfi fyrir börn til að vaxa og þroskast í, blómstra!

Það sem mestu skiptir er aukin meðvitund á meðal starfsfólks skóla, foreldra og ekki síst barnanna sjálfra.

Fræðslu- og forvarnaverkefni Barnaheilla; Verndarar barna, Vinátta og Skoh fræðslan, hafa náð til fjölda skólastarfsfólks, foreldra og barna. Öll verkefnin veita fræðslu um hvernig megi koma auga á merki um að ofbeldi eigi sér stað, hvernig megi koma í veg fyrir ofbeldi og jafnframt hvernig megi bregðast við á styðjandi hátt ef barn segir frá ofbeldi.

Það er til mikils að vinna ef hægt er að koma í veg fyrir að barn verði fyrir ofbeldi eða beiti önnur börn ofbeldi.

Munum við einhvern tímann geta skapað ofbeldislaust samfélag? Það mun eflaust taka einhverjar kynslóðir í viðbót. En við erum komin á sporið.

Þegar við öll höfum lært að iðka mannréttindi barna í daglegu lífi verðum við farin að nálgast það að hlífa börnum með öllu við ofbeldi. Það er falleg framtíðarsýn.

Barnaheill hvetja öll sem umgangast börn og ekki síður börnin sjálf að fræðast um Barnasáttmálann og læra að tileinka sér hugmyndir hans og viðhorf og sameinast þannig um vernd barna gegn ofbeldi.

Á vefsíðunni www.barnasattmali.is má fræðast um mannréttindi barna, allra barna.

Höfundur er verkefnastjóri innlendra verkefna hjá Barnaheillum.




Skoðun

Sjá meira


×